- Advertisement -

Bjarni, er í lagi með peningana okkar í Asíubankanum?

Eru peningarnir í Asíubankarnir tapaðir?

„Ætli milljarðarnir sem stjórnvöld settu í Asíubankann séu tapaðir. Gætu blaðamenn spurt BB og Gulla að þessu.“

Þannig skrifar Guðmundur Franklín  Jónsson. Ísland splæsti sem nemur tveimur og hálfum milljarði í stofnframlag til bankans.

Bjarni Benediktsson var á stofnfundi bankans í janúar 2016.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í mars 2015 ákvað ríkisstjórn Íslands að verða meðal stofnaðila að Innviðafjárfestingabankanum. Bankinn er fjölþjóðlegur þróunarbanki sem mun styðja við aðgerðir til að efla innviði í Asíu sem er sá hluti heimsins þar sem hagvöxtur er hvað mestur.

„Hagvaxtarþróunin kallar á stóraukna fjárfestingu í asískum innviðum, til að auðvelda vöru- og þjónustuflæði innan og milli Asíu, sem og fjarlægari svæða – eins og Evrópu, Afríku og Mið-Austurlanda. Heildarstofnfé bankans mun nema 100 milljörðum Bandaríkjadala, eða sem um nemur 13.000 milljörðum íslenskra króna. Heildarskuldbinding Íslands varðandi stofnféð nemur um 17,6 miljónum Bandaríkjadala, eða um 2,3 milljörðum íslenskra króna,“ segir í frétt Viðskiptablaðsins frá því í janúar 2016.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: