- Advertisement -

Hrafn Magnússon skrifaði:

Landsfundur LEB- Landssambands eldri borgara var haldinn fyrir skömmu. Nýr formaður er tekinn við, Björn Snæbjörnsson. Hann er hokinn af reynslu í stéttarbaráttunni og því góður liðsmaður og á reynsla hans eftir að koma að góðum notum í baráttu eldri borgara fyrir réttindamálum sínum. Ég tók eftir því að í ályktun um kjaramál var bent á nauðsyn þess að eldri borgarar gætu greitt til lífeyrissjóða eftir 70 ára aldur. Á þetta réttindamál hef ég oft minnst á, einkum á þessum vettvangi. Almennt verkafólk gat til ársins 1998 greitt iðgjöld til lífeyrissjóða og aflað sér réttinda til 75 ára aldurs. Með betri lífslíkum og bættri heilsu þarf engin aldursmörk, líkt og gildir um viðbótarlífeyrissparnaðinn. Ég sakna þó þess að á þessum landsfundi skuli ekki hafa verið samþykkt að krefjast heildarendurskoðunar á lögum um almannatryggingar í stað þess að vera alltaf að hjakka í sama farinu með breytingar á frítekjumörkum. Um þetta mikilvæga atriði hef ég skrifað langt mál á þessum vettvangi og í fjölmiðlum án nokkurs sýnilegs árangurs. Það þykir mér miður.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: