„Ferðaþjónustuaðilum ber skylda til að láta ekki eins og stungnir grísir með vænissýki – þeir þurfa að sýna þroska til að geta rætt hlutina…“
Anna Karlsdóttir.
„Margt af því sem heimildin fjallar um varðandi ferðamál er ekki nýtt af nálinni og margt þegar vitað þó ekki hafi verið almannarómur (fyrr en nú) – t.d að mikil eignasamþjöppun hefur orðið í íslenskri ferðaþjónustu með yfirtökum og sameiningum (mörg af litlu fjölskyldureknu fyrirtækjunum í ferðaþjónustunni eru samt drifaflið), að ferðaþjónustan dafnar á vinnu aðkomufólks og að sum fyrirtæki meðhöndla starfsfólk sitt alls ekki með besta móti, að húsnæðisekla og allskyns skítamix í kringum það tíðkast (sem er þekkt vandamál víða t.d í kanadísku þjóðgörðunum og á Tenerife þar sem Íslendingum líkar að spóka sig),“ skrifar Anna Karlsdóttir sem er dósent í land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands.
„Svo eru það skattamál, eðlileg og sértæk gjaldtaka – það þarf sérstakan pistil um það. Allavega summasummarium – í stað þess að skipa sér í lið þá legg ég til gagnrýna, gagnvirka alhliða umræðu um sjálfbærni áskoranir með lausnarmiðuðu markmiði.
Heimildin hefur unnið flotta heimildavinnu sem er þó því marki brennd að það er eins og þessar aðstæður eigi sér stað í lofttæmdu rými – sem er auðvitað ekki rétt ( Íslenskur fókus alfarið eins og við séum bara Palli einn í heiminum).
Ferðaþjónustuaðilum ber skylda til að láta ekki eins og stungnir grísir með vænissýki – þeir þurfa að sýna þroska til að geta rætt hlutina og haga sér að frumkvöðlahætti í að breyta hlutum til batnaðar. Eigið góðan föstudag og verslunarmannahelgi og komið vel fram við starfsfólkið sem þjónar ykkur á vettvangi,“ skrifa Anna Karlsdóttir.