- Advertisement -

RVK: Henda fólki út með skít og skömm

Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg:

Helga Vala Helgadóttir skrifaði:

„Eftir að hafa fylgst með uppsögnum í ráðhúsinu í gær spyr ég, hvað gerðist eiginlega á íslenskum vinnumarkaði? Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki, sem hefur ekki brotið af sér í starfi, út með skít og skömm? Af hverju þykir það smart að kalla fólk inn á fund með engum fyrirvara, segja því upp og um leið vísa því úr húsi. Hvers vegna þykir atvinnurekendum ákjósanlegt að fólk fái ekki að vinna uppsagnarfrest, kveðja samstarfsfólk sitt og jafna sig á áfallinu í sátt við vinnustaðinn í stað þessarar framkomu?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Svo velti ég fyrir mér, hver setur nýja manneskju í verkefnið, hvernig gengur það ef búið er að henda þeim sem vann verkið út. Er það ekki tíma/orku og þekkingarsóun að nýta ekki þá sem sinnt hafa verkefninu árum og jafnvel áratugum saman, í að kynna verkefnin fyrir arftakanum, þ.e. ef yfirmenn ætla ekki að leggja öll verkefnin niður?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: