- Advertisement -

Samstaða með öryrkjum

Flestir vilja nefnilega geta séð sjálfum sér farborða, og ekki vera upp á aðra kominn.

„Það er mér og því fólki sem ég er í forsvari fyrir gríðarlega mikilvægt að fá stuðning frá þessum öflugu samtökum launafólks,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, en í dag undirrituðu Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, Drífa Snædal, forseti ASÍ, Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM og Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, yfirlýsingu og kröfur um bættan hag öryrkja. Yfirlýsingin og kröfurnar sem þessi stærstu samtök launafólks taka nú formlega undir með ÖBÍ.

„Aðdragandinn hefur verið nokkuð langur, og ýmislegt komið upp á leiðinni svo sem kjarabarátta, verkföll og svo Covid heimsfaraldurinni. Það má kannski segja að Kórónuveiran hafi opnað augu samfélagsins fyrir því hve fátækt er orðin mikil á Íslandi. Sá hópur sem einna verst stendur er fatlað og langveikt fólk, fólk sem hefur engar aðrar bjargir en að reiða sig á almannatryggingar. Við eigum nefnilega til að gleyma því að stærstur hluti öryrkja var á vinnumarkaði, jafnvel áratugum saman, áður en slys eða heilsuleysi gerbreytti lífi þeirra. Flestir vilja nefnilega geta séð sjálfum sér farborða, og ekki vera upp á aðra kominn. Við sem samfélag höfum ákveðið að tryggja þeim framfærslu í gegnum almannatryggingar. Þeim var og er, ætlað að grípa fólk sem ekki getur unnið vegna veikinda eða fötlunar.

Við ákváðum að snúa bökum saman, og berjast fyrir því að jöfnuður og réttlæti nái til allra hópa samfélagsins, að engin sé skilinn eftir í fátækt, og tryggja að þeir sem þurfa að reiða sig á almannatryggingakerfið njóti mannsæmandi framfærslu. Við viljum uppræta fátækt. Þess vegna erum við hér í dag,“ segir Þuríður Harpa.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Kröfurnar eru skýrar:

  • Lágmarksframfærsla öryrkja verði hækkuð þannig að fólki sé gert kleift að lifa mannsæmandi lífi.
  • Skerðingar verði endurskoðaðar þannig að þær standi ekki í vegi fyrir þátttöku á vinnumarkaði, hvort sem er að hluta eða tímabundið og að dregið verði úr tekjuskerðingum vegna lífeyristekna.
  • Störf með viðeigandi aðlögun og sveigjanlegum vinnutíma verði tryggð fyrir fólk með skerta starfsgetu.

„Fyrsta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er að útrýma fátækt í allri sinni mynd, allstaðar. Við getum ekki kallað samfélagið okkar velferðarsamfélag nema allir njóti mannsæmandi lífs og enginn sé skilinn eftir í í fátækt. Það á ekki síst við á tímum endurreisnar sem nú fara í hönd að loknum  Covid-19 faraldrinum. Það er hagur allra að bæta kjör öryrkja og sjá til þess að enginn sé dæmdur til fátæktar þó starfsgeta láti undan. Að festast í fátæktargildru hefur áhrif á starfsgetu til framtíðar. Það er dýru verði keypt, ekki bara fyrir einstaklinga heldur fyrir samfélagið allt að svipta fólk virðingu og getu til athafna. Lítið svigrúm er fyrir fatlað og langveikt fólk á íslenskum vinnumarkaði. Til að sem flestir geti notið sín á vinnumarkaði þarf þröskuldurinn að vera lægri. Öryrkjum má ekki hefnast fyrir það fjárhagslega að reyna getu sína í starfi þannig að þeir verði jafnvel verr settir eftir.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: