Björgun: Jón Pétur Zimsen skrifaði á Facebook:
Kvöldævintýri, fórum tveir að veiða á kajak fyrir utan Kjalarnes.
Lentum í vandræðum með pedalaspaðana á öðrum kajakinum sem endaði með að við veltum báðum bátunum á endanum.
Eftir smá svaml, ca 30 mín, í sjónum og uppi á kili annars kajaksins þangað til tveir björgunarsveitarmenn komu á sæköttum okkur til bjargar.
Mikil fagmennska hjá björgunarsveitinni og munum að styrkja þær með öllum ráðum.
Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir, mældur líkamshiti 32 gráður.
En með öruggum handbrögðum tók það ca 30 mínútur að koma okkur upp i 37 gráður undir hitateppum og með volgt innrennsli í æð.
Fengum afbragðs móttökur á bráðamóttökunni þar sem við vorum útskrifaðir um klukkustund síðar.
Fengum þennan nýmóðins klæðnað á spítalanum og Kvika (hundurinn minn) var glöð að fá okkur feðga heila á húfi heim.
Vorum í björgunarvestum og erum ágætlega vanir en slysin gera ekki boð á undan sér. Þá er gott að búa á Íslandi þar sem þrautþjálfað fólk, bæði í sjálfboðavinnu og á spítölunum er til staðar þegar við þurfum á því að halda.
Takk allir sem komu að þessu brasi okkar í kvöld, erum báðir óendanlega þakklátir.