- Advertisement -

Miðflokkurinn er á móti umbótum

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

Miðflokkurinn er ósvífnastur af stjórnarandstöðufolkkunum í harðsvíraðri hagsmunagæslu fyrir örfáar stórútgerðir. Hann leggur blessun sína yfir milliverðlagningu og sér eflaust ekkert athugavert við að fjármunir verði eftir í skattaskjólsfélögum.

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

„Í gær lagði ég leið mína á hátíðarfund verkalýðsfélaganna í Þingeyjarsýslum með viðkomu í flugstöðinni á Húsavíkur, sem liggur undir skemmdum. Ég átti einkar ánægjulega stund á Húsavík enda var dagskráin frábær og sömuleiðis góð samtöl við nokkra samfélagsleg þenkjandi Þingeyinga.

Það sem kom mér á óvart var að sumir þeirra töldu kröftum sínumm best borgið innan Miðflokksins. Það kom mér verulega á óvart þar sem að í þinginu beitir Miðflokkurinn sér gegn öllum umbótum hvort sem það er að bæta kjör lífeyrisþega, tryggja að skattalækkun á eldsneyti skili sér til neytenda og í sjávarútvegsmálum.

Miðflokkurinn er ósvífnastur af stjórnarandstöðufolkkunum í harðsvíraðri hagsmunagæslu fyrir örfáar stórútgerðir. Hann leggur blessun sína yfir milliverðlagningu og sér eflaust ekkert athugavert við að fjármunir verði eftir í skattaskjólsfélögum.

Miðflokkurinn berst af alefli gegn því að lögbundið kvótaþak sé virt, á móti því að rýmkað sé fyrir strandveiðum og opnað verði á aukið frelsi til fiskveiða t.d. með opnum svæðum við Grímsey og fleiri brothætttum byggðum.

Það kæmi mér alls ekki á óvart ef þingmenn xM af höfuðborgarsvæðinu beittu sér einnig gegn endurbótum á flugstöðinni á Húsavík.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: