Allt er þetta dæmi um skrumskælingu á raunveruleikanum og í raun firrtu viðhorfi til fólks sem ekki býr við sömu forréttindi og viðkomandi.
Grímur Atlason.
Stjórnmál: Grímur Atlason skrifaði þessa fínu gein:
„Þar grunar okkur að sé dálítið stór hluti fólks sem er hugsanlega kominn yfir tekjumörk og þannig að það er hægt að taka dálítið hratt til í því.“ Bjarni Guðjónsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um leigjendur hjá Félagsbústöðum.
„Það sem er áhyggjuefni er að á atvinnuleysisbótum eru meira en 6.500 útlendingar. Fólk sækist eftir að komast á bæturnar.“ Lárus Guðmundsson, frambjóðandi Miðflokksins, í viðtali við Frosta Logason í Brotkasti.
„Það er ótrúlega hraður vöxtur útgjalda til málaflokksins og ég tel að það gagnist raunverulegum öryrkjum alls ekki að útgjöldin vaxi með aukinni tilkomu fólks sem ætti mun síður að eiga rétt á þessum bótum en hinir raunverulegu öryrkjar.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í umræðum um málefni öryrkja í þinginu.
Allt er þetta dæmi um skrumskælingu á raunveruleikanum og í raun firrtu viðhorfi til fólks sem ekki býr við sömu forréttindi og viðkomandi.
…og segja þeim að hysja upp um sig brækurnar…
1. „Þar grunar okkur að dálítið stór hluti fólks sé kominn yfir tekjumörk.“ Er það svo? Nei, það er ekki þannig og í svari Félagsbústaða segir að hugsanlega séu í dag 2-3% leigjenda yfir tekjumörkum. Er það vegna þess að þessi hópur sé að snuða kerfið? Nei, aðstæður geta breyst hjá fólki til batnaðar og þá fer það yfir tekjumörk.
Bjarni ætti frekar að hafa samband við vini sína í Sjálfstæðisflokknum á Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og segja þeim að hysja upp um sig brækurnar í framboði á félagslegu leiguhúsnæði og þjónustu. Í áratugi hefur það verið þannig að fólk er hrakið úr þessum sveitarfélögum til Reykjavíkur.
2. Málflutningur Lárusar er ómerkilegur. Tölurnar eru rangar, það eru 1000 færri á atvinnuleysisskrá en hann heldur fram, en það er samt algjört aukaatriði. Hvers vegna er þessi fjöldi á atvinnuleysisskrá hér? Það er vegna þess að erfitt er að manna láglaunastörfin í útflutningsgreinunum og byggingariðnaðinum með heimafólkinu. Eftirspurn á sumrin eftir fólki í ferðaþjónustu t.d. og byggingariðnaðurinn fer upp og niður. Erlent vinnuafl er ódýrast og því miður fyrst til að vera rekið úr störfum þegar hagkerfið kólnar.
Það væri nær að Lárus og félagar litu á kennitöluflakk, launaþjófnað og skattaundanskot þeirra sem standa fyrir þessum innflutningi starfa. Þar liggja umtalsvert meiri fjármunir en í þeirri fullyrðingu að Albanir, Pólverjar og Rúmenar sækist í bæturnar í paradísinni Ísland.
Vandi Íslands er hin stórkostleg misskipting.
3. Sigmundur Davíð og sýn hans á raunverulega öryrkja er klassískt hundaflautubragð. Vandi Íslands snýst ekki um öryrkja og þeirra framkomu gagnvart Tryggingastofnun ríkisins. Vandi Íslands er hin stórkostleg misskipting og auðsöfnun örfárra sem kunna þá list öðrum fremur að borga hlutfallslega minna til samneyslunnar en sauðsvartur almúginn.
Sigmundur þarf ekki að leita langt yfir skammt vilji hann hreinsa til í ranni „raunverulegra“ skattgreiðenda á Íslandi og fjölga verulega í þeim hópi sem greiða það sem þeim ber til samneyslunnar.
Það hefur nefnilega löngum verið mjög einfalt að eiga peninga á Íslandi.