
Stjórnmál: Björn Leví Gunnarsson skrifaði eftirfarandi:
„Og hvað með það? Það er ekkert að því að skipuleggja eitt og annað fyrirfram. Það er svakalega augljóst að ekkert gerist nema niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu styðji umsókn. En það er nákvæmlega ekkert að því að undirbúa strax viðbrögð við niðurstöðum til þess að það sé strax hægt að fara að vinna samkvæmt þeim.
Þú gætir haft áhuga á þessum
Það er meira að segja hjálplegt til þess að geta sagt fólki áður en gengið er til atkvæða hvernig framhaldið yrði, ef niðurstöður verða að sækja eigi um. Var það ekki það sem var verið að biðja stöðugt um – hvað myndi gerast ef samþykkt væri að fara í umsóknarferli?“