Miðað við íbúafjölda er rekstrarhalli Seltjarnarness þrefalt meiri en rekstrarhalli Reykjavíkur.
„Hæ, Guðni Pírati hér.
Hvað er eiginlega að frétta hjá hinum sveitarfélögunum?
Reykjavíkurborg dregur vagninn á nánast öllum mælikvörðum þegar kemur að félags- og velferðarmálum. Borgin hefur verið stærsti bakhjarl Bjargs íbúðarfélags og lagt mest af mörkum til almenna íbúðakerfisins. Borgin hefur líka verið leiðandi í skaðaminnkandi úrræðum og hugmyndafræðinni ,,Húsnæði fyrst“ sem við Píratar beittum okkur fyrir að koma á laggirnar. Við vitum að það er eina leiðin sem raunverulega hjálpar fólki í viðkvæmri stöðu. Þetta gerir borgin á sama tíma og hún er með næstlægsta skuldahlutfallið á höfuðborgarsvæðinu. Borgin er klárlega hluti af lausninni.
Hvernig í ósköpunum stendur á því að sveitarfélag eins og Seltjarnarnes sem hefur alltaf verið stjórnað af Sjálfstæðisflokknum, býður varla upp á neins konar félagsleg úrræði og á örfáar félagsíbúðir skuli vera að skila tapi af A-hluta níunda árið í röð? Miðað við íbúafjölda er rekstrarhalli Seltjarnarness þrefalt meiri en rekstrarhalli Reykjavíkur. Hvernig er þetta hægt? Þetta vilja þau gera við Reykjavík: hola félagslega kerfið að innan, selja eigur borgarinnar og keyra hana í gjaldþrot líkt og Seltjarnarnes.
Þetta sýnir okkur að við eigum ekki að reka sveitarfélag eins og fyrirtæki. Borgin á að vera rekin eins og samfélag, ekki fyrirtæki.“
