- Advertisement -

Kjósendur hafa alltaf rétt fyrir sér

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, skrifaðoi eftirfarandi grein:

Kæru landsmenn.

Ég er þakklát fyrir lýðræðið okkar.

Á laugardag fóru fram kosningar þar sem kjósendur völdu fólk til forystu í sínu sveitarfélagi til næstu fjögurra ára. Það er ekki sjálfgefið að biðja um og fá traust í kosningum. Til forystu í sveitarfélagi eða við stjórn landsmála. Hvert einasta atkvæði er mikils virði og við erum þakklát fyrir atkvæði greidd Samfylkingu og frambjóðendum okkar um land allt.

Hringinn í kringum landið eru jafnaðarmenn…

Samfylkingin fékk næstmest fylgi á landsvísu í þessum kosningum. Við fjölguðum fulltrúum okkar í sveitarstjórnum um helming og eru þeir nú 38 talsins. Það er næstmesti fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa af S-listum frá stofnun flokksins.

Árangur Samfylkingar var ekki síst ánægjulegur úti á landsbyggðunum. Hringinn í kringum landið eru jafnaðarmenn að koma til baka og festa Samfylkingu í sessi á ný sem sterkan jafnaðarflokk um land allt. Þetta skiptir okkur miklu máli.

Um leið er ljóst að heilt yfir settum við í Samfylkingu markið hærra enda höfum við mikinn metnað fyrir jafnaðarfólk í landinu. Svo virðist sem víða hafi fólk með jafnaðartaug ekki greitt okkar flokki atkvæði sitt í þetta sinn. Það tökum við alvarlega. Kjósendur hafa alltaf rétt fyrir sér.

Það er á minni ábyrgð að leiða og efla Samfylkinguna – jafnaðarflokk Íslands með forystufólki okkar um land allt. Og við munum nú í sameiningu – með fjölda nýrra fulltrúa – vinna úr umboði okkar, hlusta eftir vilja fólksins og leita leiða til að standa betur undir væntingum í næstu sveitarstjórnarkosningum. Í hverju sveitarfélagi fyrir sig og á landsvísu.

Sjálfstæðisflokkur verður nú í forystu fyrir fjölmennustu sveitarfélögum landsins, og þar á meðal í Reykjavík. Ég óska þeim góðs gengis og við munum leggja okkur fram við að eiga áfram gott samstarf á milli ríkis og sveitarfélaga. En Samfylkingin mun alltaf veita kröftuga andstöðu við harðri hægripólitík sem kemur niður á vinnandi fólki og veikir það sem við eigum hérna saman á Íslandi. Það er skylda okkar sem jafnaðarfólks og þar gefum við ekkert eftir.

Þetta gerum við áfram af fullum krafti.

Í borgarmálum þarf Samfylking að byggja aftur upp traust. Þó að flokkurinn hafi haldið sínum fimm fulltrúum í borgarstjórn þá er þetta ljóst. Við tökum það til okkar. Þessi uppbygging hefst hjá nýrri forystu okkar í borginni strax í dag. Enda tekur tíma að vinna traust og það getum við aðeins gert með verkum okkar.

Mikil endurnýjun hefur átt sér stað í Samfylkingu á síðustu árum. Fyrst í landsmálunum og nú einnig í sveitarstjórnum þar sem 18 af 19 oddvitum okkar eru nýir. Þetta er nýtt upphaf og ný kynslóð jafnaðarfólks – sem mun láta til sín taka á næstu árum eins og við höfum séð í landstjórninni. Verkefni okkar er enn að byggja upp sterkan jafnaðarflokk fyrir Ísland.

Í ríkisstjórn hristum við upp í kerfinu og leiðum breytingar. Þetta gerum við áfram af fullum krafti – í þágu þjóðar og með gildi jafnaðarmennsku að leiðarljósi. Lögum ríkisfjármálin, bætum samgöngur, höggvum á hnúta í orkumálum, eflum heilbrigðiskerfið, byggjum verknámsskóla, innleiðum réttlát auðlindagjöld, fjölgum íbúðum, tryggjum trausta stjórn á útlendingamálum, hlúum að eldra fólki og öryrkjum – svo nokkur dæmi séu nefnd.

Að lokum þetta: Þakkir til kjósenda, frambjóðenda og sjálfboðaliða allra flokka fyrir ykkar framlag til lýðræðisins í okkar frábæra landi. Það er svo margt sem við getum gert betur – en líka mikið sem við eigum hérna saman sem við viljum hlúa að og vernda.

Nú held ég til Noregs þar sem ég funda meðal annars með forsætisráðherra Indlands, fulltrúum frá íslensku atvinnulífi og með kollegum mínum á Norðurlöndum.

Miðjan valdi fyrirsögnina.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: