Hávaxtastefnan hefur valdið samdrætti, atvinnuleysi og sligandi húsnæðiskostnaði.
Halla Gunnarsdóttir.
Efnahagur: Halla Gunnarsdóttir formaður VR, skrifaði:
„Tvennt sláandi á sér stað núna á sama tíma og stýrivextir hækka:
- 1. Fréttir berast af ofurhagnaði bankanna – svo miklum að því má jafna við að hver einasti fullorðni Íslendingur sé að greiða bönkunum um 320 þúsund krónur á ári í hagnað.
- 2. Uppgjör matvörurisanna sýnir meiri framlegð og greining Seðlabankans frá í apríl dregur fram þá staðreynd að sveiflur krónunnar skila sér að jafnaði eingöngu í hækkun á matvöru, sjaldan lækkun.
Seðlabankinn spáir því nú að forsendur kjarasamninga bresti í haust en leggur hart að stéttarfélögum að segja þeim ekki upp. Vel mætti hugsa sér að skapa forsendur fyrir slíku, en það verður þó aldrei nema að fyrirtæki axli sína ábyrgð og láti af óþörfum verðhækkunum. Þar duga ekki tóm fyrirheit, við þurfum að hafa eitthvað í hendi.
Hávaxtastefnan hefur valdið samdrætti, atvinnuleysi og sligandi húsnæðiskostnaði. Fórnarkostnaðurinn er mikill, en hún er orðin aðkallandi spurningin um hinn raunverulega ávinning.“
