- Advertisement -

Þórdís Lóa þakkar fyrir ágreininginn

Borgarstjórn: Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sat átta ár í borgarstjórn í nafni Viðeisnar. Á síðasta fundinum sagði hún:

„Eftir átta ár í borgarstjórn stendur fyrst og fremst eftir þakklæti. Þakklæti fyrir traustið, samstarfið, samtölin, ágreininginn, lærdóminn og samferðina. Það hefur verið mikill heiður að fá að þjóna Reykjavík og vinna að málum sem skipta borgarbúa máli, s.s. í samgöngum, fjármálum, húsnæðismálum, stafrænni þróun, atvinnumálum, góðum stjórnarháttum og betri þjónustu.

Ég hef alltaf trúað á frjálslynda, ábyrga og framsækna borg. Borg sem hugsar stórt, en gleymir ekki hversdagslegri þjónustu. Borg sem byggist upp í litlum skrefum, með samvinnu, þolinmæði og kjarki til að taka erfiðar ákvarðanir til framtíðar. Það sem stendur eftir eru ekki átökin heldur fólkið. Samstarfsfólkið í borgarstjórn, fólk úr öllum flokkum, starfsfólk borgarinnar og borgarbúar sjálfir.

Enginn gerir neitt einn í pólitík. Enginn á einn hugmyndirnar, breytingarnar eða árangurinn. Ég kveð borgarstjórn sátt, þakklát og stolt af mörgu sem hefur áunnist. Reykjavík verður aldrei fullkláruð. Hún er lifandi verkefni sem þarf stöðugt nýjar hugmyndir, nýja orku, ný samtöl og nýtt fólk.

Kæru íbúar, takk fyrir traustið. Kollegar, takk fyrir samstarfið. Takk fyrir samtölin, lærdóminn og samferðina. Starfsfólki skrifstofu borgarstjórnar og starfsfólki Ráðhússins þakka ég sérstaklega fyrir samstarfið, traustið og vináttuna.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: