Alþingi: Sigurður Ingi Jóhannsson sagði á þingi nú fyrir skömmu:
„Ég vildi vekja athygli forseta á því, sem forseti sjálfsagt veit, að á dagskrá þingsins er stórt mál sem hefur afdrifaríkar afleiðingar fyrir Ísland og umræðuna hér í þinginu og samfélaginu á næstunni. Því finnst mér mikilvægt að vekja athygli forseta á því að framkvæmdarvaldið setti þingið í afleita stöðu, tímaþröng, sem gerði það að verkum að formaður utanríkismálanefndar hefur að mínu mati þurft að hafna öllum eðlilegum beiðnum minni hlutans um frekari gesti og frekari svör frá þeim aðilum sem komu fyrir nefndina.
Satt best að segja gekk þetta svo langt að málið var tekið út hér á mánudagsmorgni en eftir það barst fullt af svörum og voru þau að berast fram eftir degi á mánudaginn. Það virtist ekki hafa nein áhrif á meiri hlutann í þeirri ákvörðun. En ég vildi vekja athygli forseta á því að þessi vinnubrögð eru ekki Alþingi sæmandi. Forseti Alþingis verður að taka hér upp harðari stefnu gagnvart framkvæmdarvaldinu þannig að það setji ekki löggjafarvaldið í þá stöðu að verða hér einhvers konar afgreiðslustofnun.“