Mikilvægt að Lula sigraði
Erlend stjórnmál:
Kristinn Hrafnsson skrifaði:
Blaðamaðurinn í mér fer alltaf fara varlega í að hæla stjórnmálamönnum, enda þarf maður líka oft að gagnrýna þá fyrir að fara út af sporinu. Lula Brasilíuforseti er þar ekki undanskilinn. Það verður þó að segjast að hann er einn af þeim fágætu pólitíkusum sem virka einlægir í ásetningi til almannaheilla og gefa frá sér þá áru að vera umhugað um einstaklinginn. Hlý nánd og þétt handtak er minnistætt.
Ég hitti hann fyrst fyrir fjórum árum þegar hann var nýbúinn að sigra Bolsonaro eldri, með naumari mun en núna gegn syninum Flavio. Náði að sitja með honum í klukkutíma þó að uppúr væri að sjóða í höfuðborginni, enda stuðningsmenn fasistans (og hann sjálfur) að undirbúa valdarán skömmu síðar. Lula hét mér fullum stuðningi í baráttunni fyrir frelsi Julian Assange – og stóð við loforðið. Talaði máli hans víða, meðal annars í opnunarræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, í opinberri heimsókn til Bretlands þar sem Julian var í dýflisu og í samskiptum við vin sinn Frans páfa, sem tók á móti Stellu eiginkonu fangans og sonum þeirra. Seinna skiptið sem ég hitti Lula var í Róm helgina sem Frans páfi var borinn til grafar. Tókst á mettíma að skipuleggja fund Julians og forsetans svo hann næði að þakka Lula ómetanlega aðstoð í eigin persónu. Þetta var daginn áður en báðir fóru til að kveðja páfann hinstu kveðju.
Ég var mjög svartsýnn fyrir þessa seinni umferð kosninganna og taldi allar líkur á því að Brasilía yrði næsta fórnarlamb pendúlsveiflu til öfgahægrisins í rómönsku Ameríku sem vandlega hefur verið kynnt undir af utanaðkomandi öflum, Trumpklíkunni, amerískum hvítasunnusöfnuðum, kristnum síonistum og Ísraelistum frá hryðjuverkaríkinu sjálfu.
Það er mikilvægt að Lula heldur velli. Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi.