- Advertisement -

Fasteignaskattar á orkumannvirki?

Alþingi:

Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar, spurði Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra. Hann svaraði:

„Hér er um mikilvægt mál að ræða sem hefur það að markmiði að tryggja nærsamfélaginu sanngjarna hlutdeild af ávinningi orkuvinnslu í sínu nágrenni með því að fella niður undanþágur frá fasteignaskatti sem orkumannvirki hafa notið. Frumvarpið mun ekki bara styrkja tekjugrunn orkusveitarfélaga, hærri tekjur þeirra skila sér til flestra sveitarfélaga í gegnum jöfnunarsjóðinn. Þetta mál er jafnframt mikilvægt verðmætasköpunarmál þar sem það mun höggva á hnúta í orkumálum með því að auka hvata í skipulagsvinnu.“

Málið á sér langa forsögu, allt aftur til ársins 2010 og hafa starfshópar fjallað um það síðan. Í febrúar 2024 birtist skýrsla starfshóps um skattlagningu orkuvinnslu þar sem lagt var mat á hvernig ávinningur af auðlindanýtingu gæti skilað sér betur til nærsamfélaga. Þótt skýrslan fæli í sér mikilvægar línur um hvernig vinna eigi málið áfram leysti hún ekki úr þeim fjölmörgu og flóknu tæknilegu atriðum sem fylgja því að afnema undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati.

Því þarf að
þróa nýja
aðferðafræði…

Flækjustigið er mikið. Í fyrsta lagi falla orkumannvirki ekki undir hefðbundna skilgreiningu á fasteign samkvæmt íslenskum lögum. Orkumannvirki; stíflur, lón, göng og fleira, passa ekki við hefðbundna skilgreiningu á fasteign sem ein afmörkuð lóð. Þau teygja sig gjarnan yfir stór svæði, margar lóðir og mismunandi eignarlönd.

Í öðru lagi ná þau tölvukerfi sem halda utan um fasteignir á Íslandi ekki utan um orkumannvirki, þ.e. fasteignaskrá, þinglýsingar- og álagningarkerfi fasteigna. Tæknilega er breytingin flókin og má líkja henni við að setja hring inn í kassalaga form. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, HMS, vinnur nú að lausn á þessu.

Í þriðja lagi ganga orkumannvirki ekki kaupum og sölum á almennum markaði eins og hefðbundið húsnæði. Því þarf að þróa nýja aðferðafræði til að meta verðgildi þeirra.

Í fjórða lagi hefur þurft að útfæra sanngjarna leið til að skipta fasteignaskatttekjum milli sveitarfélaga þegar áhrifasvæði raforkuvera teygja sig yfir fleiri en eitt sveitarfélag. Það hefur verið flókið verkefni auk fjölmargra annarra flækjuatriða sem hefur þurft að leysa úr.

Nú að spurningu háttvirts þingmanns. Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt síðastliðið vor þar sem hugtakið rýmiseign, eða „annexeiendom“ á norsku — en hugtakið rýmiseign er að norskri fyrirmynd og var kynnt til sögunnar ásamt hugmyndum um skiptingu fasteignaskatttekna. Um er að ræða risastóra kerfisbreytingu þar sem breyting á fasteignarhugtakinu er hvorki einföld né algeng í íslenskri stjórnsýslu. Verkefnið krefst mikillar samvinnu við fjölda ráðuneyta og þá sérstaklega innviða- og félagsmálaráðuneyti, auk fleiri stofnana, þar með talið HMS og sýslumanna. Jafnvel þó að frumvarpið kæmi fram nú á haustþingi tæki afnám undanþágunnar ekki gildi fyrr en í fyrsta lagi árið 2028 þar sem orkufyrirtækin og stjórnsýslan þurfa eðlilegan aðlögunartíma.

Málið er núna
fyrst og fremst
í vinnslu…

Ég get nefnt sem dæmi að í Noregi var aðlögunartíminn nokkur ár. Það er mjög vandséð að framlagningu frumvarpsins verði flýtt og ekki er gert ráð fyrir frumvarpinu á haustþingi heldur eftir áramót líkt og kemur fram í þingmálaskrá. Ég tel þó rétt að árétta að afar mikilvægt er að vandað sé til verka þar sem mikið er undir. Málið er núna fyrst og fremst í vinnslu HMS og framlagning frumvarpsins er háð því að stofnunin hafi lokið vinnu sinni. Það lýtur þá að fasteignamatinu, skráningu á rýmiseignunum, hvernig við ættum að skrá þetta inn í fasteignamatið og þá tölvukerfi sem þurfa að taka við því en við erum búin með hlutann sem lýtur að dreifingu skatttekna yfir nokkur sveitarfélög og það er mjög áhugavert kerfi sem lýtur þá að vatnsaflsvirkjunum, jarðvarmavirkjunum og líka vindorkuverum. Ég get tekið dæmi varðandi vindorkuverin. Þá er horft á sýnileikann varðandi fjarlægð, sem er mjög áhugavert. Ég kynnti þetta fyrir norskum kollegum mínum og þeim fannst það mjög áhugavert hvernig við metum áhrifasvæði vindorkuvera og svo með hefðbundnum hætti varðandi vatnsorkuver og jarðvarmaorkuverin.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: