Nú er leyfilegt samkvæmt lögum að einn aðili geti átt eitt útgerðarfyrirtæki og einnig 49,9% í öllum öðrum útgerðarfyrirtækjum á Íslandi.
Oddný Harðardóttir.
Stjórnmál: Oddný Harðardóttir fyrrverandi þingmaður og ráðherra, skrifar af gefnu tilefni:
„Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um eignarhald 20 stærstu útgerðarfyrirtækjanna í öðrum rekstri – sem unnin var að beiðni Dags B. Eggertssonar alþingismanns, hefur verið birt á vef Alþingis. Það sem blasir við er að fyrirtækin áttu yfir 400 milljarða í öðrum félögum. Það er greinilega varlega áætlað og ekki allt talið.
Þrisvar sinnum lagði ég, ásamt fleiri þingmönnum Samfylkingarinnar, fram frumvarp um að skilgreina betur tengda aðlia í sjávarútvegi. Nú er leyfilegt samkvæmt lögum að einn aðili geti átt eitt útgerðarfyrirtæki og einnig 49,9% í öllum öðrum útgerðarfyrirtækjum á Íslandi.

Í frumvarpi mínu var lagt til að miðað verði við að aðilar teljist tengdir fari annar aðilinn með að minnsta kosti 25% hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í hinum, til samræmis við lög um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019. Er því gert ráð fyrir því að ef aðili telst raunverulegur eigandi annars teljist þeir „tengdir aðilar“ í skilningi laganna.
Í öðru lagi er lagt til að til tengdra aðila teljist lögaðilar sem stjórnað er af sömu einstaklingum og hjón, sambúðarfólk, börn þeirra og fósturbörn auk lögaðila í þeirra eigu.
Í þriðja lagi er lögð til ítarlegri skilgreining á því hvað felist í raunverulegum yfirráðum en kveðið er á um í gildandi lögum um stjórn fiskveiða. Er lagt til að með raunverulegum yfirráðum sé átt við rétt sem skapast með samningum eða einhverjum þeim hætti sem gerir aðila kleift að hafa afgerandi áhrif á félag, með eignarhaldi eða rétti til að nota eignir félags, allar eða að hluta, eða með rétti til að hafa afgerandi áhrif á samsetningu, atkvæðagreiðslu eða ákvarðanir stofnanafélags.
Að lokum er kveðið á um málsmeðferð Fiskistofu þegar samanlögð aflaheimild einstakra aðila og tengdra aðila er yfir 6% af heildarverðmæti allra tegunda sem sæta takmörkunum á leyfilegum heildarafla. Ber í þeim tilvikum að tilkynna til Fiskistofu hverja þá ráðstöfun sem leiðir til hækkunar á aflahlutdeild áður en slík lögskipti koma til framkvæmda. Kemur ráðstöfunin ekki til framkvæmdar fyrr en að lokinni athugun Fiskistofu á málinu.
Ekki þarf að hafa mörg orð um afdrif frumvarpsins á þingi. Það kom aldrei til þingsins til samþykktar. Mikilvægt er fyrir þá þingmenn sem fjalla um málið að skoða það sem áður hefur verið gert og spyrna sér í þá sögu.
Ég vona að atvinnuvegaráðherra taki fast á málinu og komi með frumvarp í haust um málefnið.“