- Advertisement -

Stenst leigubremsa Ragnars Þórs ekki stjórnarskrána

Alþingi:

Sigurður Örn Hilmarsson Sjálfstæðisflokki spurði Ragnar Þór Ingólfsson húsnæðisráðherra í Flokki fólksins:

…varið af ákvæðum
stjórnarskrárinnar…

„Mig langar að eiga örstuttan orðastað við hæstvirtan félags- og húsnæðismálaráðherra og ræða eitt af stóru málunum hans, leigubremsuna svokölluðu. Hingað til hefur mikið verið rætt um þessi hagrænu sjónarmið, efnahagslegar afleiðingar leigubremsunnar, en stjórnarskránni verið gefinn minni gaumur. En það er nefnilega svo að frumvarpið felur í sér inngrip í eignarréttindi og atvinnufrelsi og skerðir samningsfrelsi borgaranna. Allt er þetta varið af ákvæðum stjórnarskrárinnar og má ekki skerða nema almenningsþörf krefji. Í dómaframkvæmd hér innan lands hefur verið vísað til þess að það sé ekki nægjanlegt að lögmætt markmið sé til staðar heldur þurfi líka að sýna fram á að takmörkunin sé nauðsynleg til að ná markmiðinu sem að er stefnt. Hið sama má segja um dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu.

Í greinargerð frumvarpsins er hins vegar ekki lagt mat á þessi atriði. Ég hef nokkrar efasemdir um að fyrirhuguð lög standist að þessu leyti. Vissulega er það svo, virðulegi forseti, að leiguverð hefur hækkað umtalsvert á undanförnum árum en staðreyndin er sú að laun hafa hækkað vel umfram leiguverð og laun lægstu taxtanna hækkað enn meira. Þetta er staðreynd. Með öðrum orðum má segja að leiguverð í hlutfalli við laun sé lægra núna en það var fyrir tíu árum síðan. Því spyr ég hæstvirtan ráðherra: Hvers vegna er ekkert mat á þessum atriðum að finna í greinargerð frumvarpsins? Hvaða almenningsþörf er það sem krefst þess að ríkið skerði samningsfrelsi borgaranna, atvinnufrelsi og eignarréttindi þeirra? Og að endingu, sem er kannski það skrýtnasta: Hví er atvinnuhúsnæði sett undir sama hatt þegar augljóst er að fyrirtæki og einstaklingar hafa mismunandi þarfir í þessu sambandi?“

Ragnar Þór svaraði:

Það ríkir
auðvitað
algjört frelsi…

„Varðandi framlagt frumvarp um leigubremsu þá er það mat ráðuneytisins að þarna sé á engan hátt verið að ganga á eignarrétt eða samningsfrelsi þar sem samningsfrelsi ríkir sannarlega á milli leigusala og leigutaka. Hins vegar er verið að setja takmarkanir á það hvað hægt er að hækka leigu mikið eftir að samningar eru gerðir.

Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir því að það sé hægt að fá undanþágu fyrir frekari hækkunum umfram þær takmarkanir sem settar eru ef verður aukið viðhald eða stórkostlegar endurbætur á húsnæði. Þá sé heimilt samkvæmt frumvarpinu, og hefur verið og var fyrir, að gera breytingar á leiguverði umfram vísitölu. Þetta er í engu frábrugðið takmörkunum á því hversu mikið er hægt að hækka leigu eftir að samningurinn er gerður. Það ríkir auðvitað algjört frelsi í samningum til leiguverðs sem fer eftir markaði hverju sinni en takmörkun á því hvað má gera eftir að samningur er gerður. Slíkar takmarkanir, þar sem háttvirtur þingmaður vísar í Evrópurétt, eru til staðar í flestöllum samanburðarlöndum með einhverjum hætti, þannig að slík áhrif get ég ekki séð að hafi haft nokkur áhrif á samningsrétt eða samningsfrelsi, hvorki lögaðila né einkaaðila. Varðandi atvinnuhúsnæði þá er það auðvitað óeðlilegt að við séum í þeim fasa að hér hækki sjálfkrafa leiga á mánaðarfresti en ekki á ársfresti eins og þekkist víðast hvar annars staðar.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: