- Advertisement -

Segja Daða Má hafa logið í Alþingi

Stjórnmál:

Þingmenn vildu að fjármálaráðherra stæði fyrir máli sínu:

Þingmenn koma hver á eftir öðrum í ræðustól þingsins og kalla þeir eftir að Daði Már Kristófersson komi í þinghúsið og útskýr sitt mál, en hann er sagður hafa sagt ósatt á Alþingi þegar hann ræddi síðast málefni Landsvirkjunar. Daði Már sagði þá að hann hafi ekki fundað með stjórn Landsvirkjunar. Nú hefur komið í ljós að það er ekki rétt. Hann mun hafa fundað níu sinnum með stjórninni án þess að Hörður Arnarson væri boðaður á fundina.

Ljóst er að þetta mál er hvergi að fullu rætt. Enda er sú staða, sem nú er uppi, alvarleg. Fráfarandi forstjóri hefur farið fyrir starfsfólki sem hefur rekið Landsvirkjun með miklum sóma og er fyrirtækið núna sterkara en nokkru sinni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Því er ástæða til að óttast að nýja stjórnin, sem hefur takmarkaða  reynslu af rekstri sem Landsvirkjun er. Og verður vonandi áfram.

Álfheiður Ingadóttir, sem átti sæti í stjórn Landsvirkjunar í 14 ár, skipuð bæði af hægri- sem vinstristjórnum, skrifar:

„Stjórnarformaður Landsvirkjunar, Brynja Baldursdóttir og Daði Már fjármálaráðherra féllu rækilega á þessu einfalda prófi aðspurð um ástæður þess að Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins til 17 ára, kaus að segja upp. Þvert á þessa alþekktu reglu reyndu þau bæði að gera lítið úr málinu og breiða yfir raunverulegan sannleika með hálfkveðnum vísum og hroka. Þannig sagði stjórnarformaðurinn starfslok Harðar „fyrr en ætlað var“ hvað sem það á að þýða! og gaf í skyn að Hörður, sem var forstjóri Marels 1999-2009, kynni ekki að vinna með „faglegum“ stjórnarmönnum eins og henni sjálfri og nýrri stjórn fyrirtækisins. Þá sagði ráðherrann á Alþingi einhvern ágreining hafa verið um „stjórnarhætti“ og „nálgun um ákvarðanatöku“ en enginn efnislegur ágreiningur hefði verið um annað. Hann fullyrti að þar með væri „öll sagan sögð“.“

Þetta er Landsvirkjun

Guðlaugur Þór var fyrstur þingmanna til að ræða þetta mál í þinginu fyrir skömmu. Hann sagði:

„Ég er hér að ræða fundarstjórn forseta því að svo vill til að þann 19. október síðastliðinn spurði ég hæstv. fjármálaráðherra út í starfslok forstjóra Landsvirkjunar sem hafði starfað sem forstjóri farsællega í 17 ár. Nú liggur það fyrir að þær upplýsingar sem hæstv. ráðherra gaf þinginu eru ekki réttar. Hér sagði hæstv. ráðherra með miklum þjósti að öll sagan væri sögð og að forstjórinn hefði ekki hrökklast úr starfi. Það er augljóslega ekki rétt, virðulegi forseti, og við verðum að fá hæstv. fjármálaráðherra hingað í þingið í dag til að útskýra hvað hér er á ferðinni. Þetta mál þolir enga bið. Þetta er Landsvirkjun.“

Forsætisráðherra verður að grípa í neyðarhemil og stöðva þennan fjanda sem er verið að næra, dag eftir dag.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: