Alþingi:
Útlendingamál og ofbeldi:
„Þótt ríkisstjórnin sé í hálfgerðum dvala heldur lífið áfram og ýmislegt reyndar sem krefðist þess helst að vera með ríkisstjórn sem er ekki í dvala: 20 glæpahópar í skipulagðri brotastarfsemi, menn með skotvopn á almannafæri, hópar sendir hérna frá Svíþjóð sérstaklega til að fremja ofbeldisverk og skipulögð glæpastarfsemi þannig orðin gríðarmikill vandi,“ sagði Snorri Másson Miðflokki á Alþingi þegar hann beindi orðum sínum að Kristrúnu forsætisráðherra.
Snorri sagði áhrif af óæskilegum áhrifum „misráðinnar“ útlendingastefnu, s.s. ofbeldisvandamál á almennum vettvangi í skólum og að greint hafi verið frá í fjölmiðlum að hér sé farið að bera á heiðursofbeldi, nokkuð sem við þekkjum hingað til aðeins úr framandi menningarheimum en ekki hér á Íslandi.“
…háttvirtur þingmaður
ætti að styðja
ríkisstjórnina…
Ég spyr mig hvort hæstvirtur forsætisráðherra hafi hreinlega ekki áhyggjur af þessari þróun í tengslum við skipulagða glæpastarfsemina í tengslum við hitt sem er heiðursofbeldi, önnur framandi menningarfyrirbæri sem ættu ekki að þekkjast hér á Íslandi en eru farin að gera vart við sig. Ég spyr hvort ekki sé mál að linni og hvort þessi ríkisstjórn sé ekki tilbúin til að ráðast að rót vandans og ef svo er ekki, er hún tilbúin til að bregðast alla vega við ástandinu eins og það birtist okkur núna?“
Kristrún svaraði Snorra, t.d. svona:
„Ég þakka háttvirtum þingmanni fyrir fyrirspurnina og veit reyndar að hæstvirtur dómsmálaráðherra væri örugglega líka til í að standa hér og svara fyrir þetta en það er ekkert mál fyrir mig að gera það líka vegna þess að hér er teiknuð upp býsna dökk mynd.
„Það er búið að afgreiða nýlega út úr ríkisstjórn og frá þingflokkum breytingar sem snúa að dvalarleyfismálum sem hafa að einhverju leyti mögulega opnað á einhverjar glufur í kerfinu þar sem er verið að misnota stöðuna. Hér er verið að brottvísa erlendum brotamönnum í miklu, miklu meira mæli en áður. Reyndar voru gerðar breytingar í vor sem m.a. Miðflokkurinn var óviss um hvort hann treysti sér til að styðja vegna þess að þetta átti að létta á fangelsum í landinu.
Raunar hefur ekki meira verið gert í þessum málaflokki í áraraðir og háttvirtur þingmaður ætti að styðja ríkisstjórnina í þessari vegferð frekar en að vera að tala málaflokkinn niður. Hér er verið að senda skýr skilaboð og hæstvirtur dómsmálaráðherra hefur sannarlega staðið í ströngu.“
Hér má lesa seinni ræðu Snorra.
Hér má lesa seinni ræðu Kristrúnar.