Reykjavík:
Úr leiðara Moggans og aðeins betur:

„Nýr borgarstjórnarmeirihluti undir forystu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra hefur tekið til hendinni svo um munar í rekstri borgarinnar á þeim skamma tíma sem liðinn er frá kosningum. Þetta er í samræmi við niðurstöður kosninganna í Reykjavík þar sem óráðsíu Samfylkingarinnar og fylgiflokka hennar var hafnað en þeir flokkar hlutu brautargengi sem lofuðu að taka til í rekstri borgarinnar. Um það var Hildur Björnsdóttir oddviti sjálfstæðismanna skýr í kosningabaráttunni og meirihlutinn hefur sýnt að honum er treystandi fyrir verkefninu.“
Engum dettur í hug að það sé auðvelt að segja upp fjölda fólks, en það var óhjákvæmilegt eftir langvarandi taprekstur og ábyrgðarleysi í fjármálum. Mögulega mætti gagnrýna að ekki sé gengið enn lengra, en gagnrýni minnihlutans, ekki síst Samfylkingarinnar, kemur alfarið úr hinni áttinni, sem kemur út af fyrir sig ekki á óvart miðað við þá reynslu sem borgarbúar hafa af stjórn þess flokks í borginni.“
Nú bið ég lesendur að renna yfir góða grein sem Jóhann okkar Þorvarðarson, skrifaði á Miðjuna í gær. Hér er hún:
Endum samt á þessu úr leiðara Moggans: „Með þá stefnu að leiðarljósi hefur borgin, eða Orkuveita borgarinnar, ákveðið að tímabært sé að koma Ljósleiðaranum í verð. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið af því tilefni að hún hefði lengi lagt áherslu á að Ljósleiðarinn yrði seldur, enda ekki hluti af grunnrekstri Orkuveitunnar. „Við teljum að þarna liggi töluverð verðmæti sem mætti nýta með betri hætti í þágu borgarbúa, til dæmis til niðurgreiðslu skulda eða til að ráðast í mikilvægar innviðafjárfestingar. Við erum því spennt fyrir því að Orkuveitan hefji þessa vegferð,“ sagði borgarstjóri.“