- Advertisement -

Hörmungar framtíðarsýn í Reykjanesbæ

Umræðan/Facebook: Margrét Sanders, bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, í Reykjanesbæ. Margrétt hyggst ekki vera í framboði við bæjarstjórnarkosningarnar í vor:

Í Ölfusi ( tæplega 3.000 manna sveitarfélagi) verða byggð fleiri sérbýli á næsta áratug heldur en í Reykjanesbæ – þrátt fyrir að Reykjanesbær sé með á þriðja tug þúsund íbúa.

Enn og aftur sýnir meirihlutinn á spilin með framtíðarsýn sína og hún er hörmung fyrir fyrir íbúa Reykjanesbæjar.

Meirihlutinn boðar í splunkunýrri húsnæðisáætlun einhæfa uppbyggingu þar sem 86% allrar uppbyggingar til næstu tíu ára er fjölbýli, eða um 2.700 íbúðir. Á sama tíma eru einungis um 450 íbúðir í sérbýli, þ.e. einbýli, parhús, raðhús og tvíbýli.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þetta er ekki húsnæðisstefna, þetta eru pólitískar kreddur sem þjóna ekki fjölbreyttum þörfum fólksins sem hér býr.

Samanburður við sams konar sveitarfélög undirstrikar þetta: Árborg, með helmingi færri íbúa, áætlar rúmlega 1.000 sérbýli. Ölfus, með aðeins 2.800 íbúa, áætlar um 650 sérbýli.

Niðurstöður könnunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ríkisins frá því í desember 2025 segja sína sögu: Aðeins 34% landsmanna vilja búa í fjölbýli. Má vænta að Reykjavíkingar dragi þetta hlutfall verulega upp.

Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót höfnuðu að sjálfsögðu þessari stefnu á bæjarstjórnarfundi í gær. Í vor eru gríðarlega mikilvægar kosningar og það verður að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef við viljum afstýra því að Reykjanesbær verði Litla-Reykjavík.

Eftirspurn eftir einbýlis-raðhúsa- og parhúsalóðum í Reykjanesbæ hefur aukist á undanförnum árum. Þrátt fyrir þessar óyggjandi staðreyndir kýs meirihlutinn að hunsa vilja íbúa og halda sig við stefnu sem gengur þvert á óskir og þarfir bæjarbúa.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: