- Advertisement -

Segja íslensku krónuna kosta borgarsjóð milljarða á ári

Íslenska krónan er borginni dýr

Pétur Hafliði Marteinsson og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarráðsfulltrúar Samfykingarinnar bókuðu á síðasta fundi borgaráðs um hversu mikið íslenska krónan kostar borgarsjóð:

„Þótt framlögð tillaga varði einungis samþykki á dagsetningum fyrir skuldabréfaútboð seinni hluta ársins 2026, minna meðfylgjandi gögn um lántökuplan borgarsjóðs á þá þungbæru vaxtabyrði sem borgin ber í ríkjandi hávaxta- og verðbólguumhverfi íslensku krónunnar.

Greinargerðin og umræður fundarins draga skýrt fram þann sértæka kostnað sem hlýst af því að starfa í krónuumhverfi: Þegar borgin sækir afar hagkvæma evruvexti til Þróunarbanka Evrópuráðsins (CEB) vegna viðhalds í skólum og frístundahúsnæði, neyðist hún til að breyta lánunum aftur í krónur með rándýrum vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…kostar A-hluta
borgarsjóðs marga
milljarða króna árlega…

Í þeim afleiðusamningum étur hávaxtaumhverfið upp hagkvæmni erlendu lánanna. Sögulegur vaxtamunur milli Íslands og evrusvæðisins kostar A-hluta borgarsjóðs marga milljarða króna árlega í töpuðum tækifærum – fjármuni sem nýtast ættu í grunnþjónustu, skóla og velferð eða jafnvel til að borga niður lánin.

Samfylkingin undirstrikar mikilvægi þess að gætt sé ýtrasta gagnsæis og varfærni um heildarkostnað afleiðusamninga þegar frekari ádrættir á CEB-láninu fara fram. Það er því ljóst að samningaviðræður við ESB um hugsanlega inngöngu geta haft bein áhrif á rekstur borgarinnar.

Í þessu samhengi vill Samfylkingin minna á að tillaga okkar í borgarstjórn um að láta kanna sérstaklega áhrif og mögulegan ábata af evruumhverfi á fjármagnskostnað og hagsmuni Reykjavíkurborgar var því miður felld af meirihlutanum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: