- Advertisement -

Einar segir hugmyndirnar vera sínar

Úr Mogga dagsins.

Mbl.is: „Sumar af þeim skipulags- og hagræðingaraðgerðum sem borgarráð samþykkti í gær hefði Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, viljað ráðast í í borgarstjórnartíð sinni en tillögurnar nutu ekki stuðnings samstarfsflokka hans í þáverandi meirihluta.

Meðal breytinga sem Einar vildi ráðast í voru á mannréttindaskrifstofu borgarinnar.

„Ég hafði ýmsar hugmyndir um að gera breytingar á skrifstofunni í ráðhúsinu sem nutu ekki stuðnings samstarfsflokka minna í meirihlutanum. Meðal annars breytingar á mannréttindaskrifstofunni, svo dæmi séu tekin,“ segir Einar í samtali við mbl.is.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Einar: Við erum að dusta rykið af þessum tillögum okkar Framsóknarmanna.

Einar var í meirihlutasamstarfi með Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum frá 2021 og þar til hann sleit meirihlutasamstarfinu í febrúar 2025 vegna ágreinings milli stjórnarflokkanna.

Dusta rykið af gömlum tillögum

Einar segir, við Moggann, að hann hefði einnig viljað ráðast í breytingar á þjónustuskipulagi í hverfum borgarinnar í síðasta meirihluta og fækka þjónustumiðstöðvum sem eru á fjórum stöðum í borginni í dag.

„Það eru sífellt færri sem koma inn í þessar miðstöðvar. Rafrænar lausnir hafa aukist mjög og sífellt færri sem mæta í þessar miðstöðvar. Rafræn þjónusta hefur aukist mjög og við höfum flutt tillögur í borgarstjórn, þegar við vorum í minnihluta, um að stofna fjölskyldumiðstöð þar sem við veitum börnum og fjölskyldum í borginni skilvirka þjónustu.

Við erum að dusta rykið af þessum tillögum okkar Framsóknarmanna frá því á síðasta kjörtímabili og erum að uppfæra þær með hliðsjón af áherslum þessa meirihluta.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: