Uppsagnir: Það var „blóðugur“ dagur í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Fjölda var sagt upp störfum og mannréttindaráð var aflagt og mannréttindaskrifstofunni var lokað. Mörgum er brugðið við þessar fréttir.
Þá er skrifstofa samskipta og viðburða aflögð og öllu starsfólki sagt upp.
„Það er um hópuppsögn að ræða en það er ekki alveg skýrt hvernig nákvæmlega verði staðið að því að sinna þessum verkefnum sem þarf áfram að sinna. Það er áhersla á útvistun verkefna þannig að maður veltir fyrir sér hvort það sé ódýrara til lengri tíma litið ef utanaðkomandi aðili er að fara að sinna utanaðkomandi verkefnum og það er ekki tekið fram í kostnaðarmati,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir.
Sanna setur þá spurningamerki við framsetningu meirihlutans á hagræðingunum. Það séu einnig mörg verkefni mannréttindaskrifstofu sem færist yfir á önnur svið borgarinnar.
„Og auðvitað eru mannréttindi ekkert fitulag. Maður enn að ná utan um þetta.“