- Advertisement -

Fast skot á ríkisstjórnina úr Húnaþingi

Álagningarprósenta fasteignagjalda verði sömuleiðis lækkuð svo reikningur til húseigenda hækki ekki og krónutalan verði óbreytt milli ára.

Stjórnmál:

„Þarna erum við að stíga afgerandi skref til að styðja íbúa sveitarfélagsins í því ólíðandi og stjórnlausa umhverfi gegndarlausra hækkana sem ríkisstjórnin hefur búið til með úrræðaleysi sínu,“ segir Sigurður Líndal Þórisson oddviti sveitarstjórnar og leiðtogi Framsóknar, segir í nýrri Moggafrétt. „Allar gjaldskrár Húnaþings vestra á næsta ári verða óbreyttar frá því sem nú er, samkvæmt ákvörðun meirihluta B-lista Framsóknar og annarra framfarasinna og D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra í sveitarstjórn Húnaþings vestra.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þetta kostar
auðvitað sitt.

„Að frysta gjaldskrána var áherslumál okkar í Framsókn fyrir sveitarstjórnarkosningar nú í vor, og afar ánægjulegt að það sé orðið að veruleika. Þó Húnaþing vestra hafi verið vel rekið um langt skeið getum við ekki endalaust haldið okkar gjaldheimtu í skefjum meðan allir í kringum okkur hækka reikningana sem þeir senda okkur. Við sem stýrum fámennu sveitarfélagi norður í landi getum tekið ágjöfina á okkur um nokkra stund, en ekki til langframa. Það þarf að snúa skipinu við og þar er komið að þætti ríkisins sem þarf að vera með öðrum í liði,“ segir Sigurður ennfremur.

Ákvörðun sveitarstjórnar segir Sigurður þýða að gjöld fyrir leikskóla og sorphirðu – svo og kort í sundlaugina á Hvammstanga – svo eitthvað sé tiltekið verði þau sömu í janúar næstkomandi og þau eru í dag. Álagningarprósenta fasteignagjalda verði sömuleiðis lækkuð svo reikningur til húseigenda hækki ekki og krónutalan verði óbreytt milli ára.

„Þetta kostar auðvitað sitt. Tekjur sveitarfélagsins verða minni en ella, á sama tíma og allt sem við kaupum hækkar í verði. Það þýðir aðhald í rekstri á næsta ári, og við tökum það á okkur frekar en að senda íbúunum reikninginn,“ segir Sigurður Líndal Þórisson í samtali við Moggann.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: