- Advertisement -

Borgin hækkar frítekjumörk húsnæðisstuðnings

„Velferðarráð samþykkti að hækka tekjumörk í reglum Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning.

Þetta er gert í kjölfar þess að frítekjumörk húsnæðisbóta hækka frá og með 1. september í kjölfar breytinga á örorkulífeyriskerfinu þannig að hækkanir leiði ekki til skerðinga á húsnæðisstuðningi.

Reykjavíkurborg aðlagar hér með reglur um sérstakan húsnæðisstuðning og hækkar tekjumörkin. Samstarfsflokkum velferðarráðs finnst mikilvægt að uppfæra reglur borgarinnar til samræmis við breytingar hjá ríkinu.

Tillögunni var vísað til staðfestingar borgarráðs,“ skrifaði Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og forseti borgarstjórnar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: