Borgin hunsar sigursæla Víkinga
Sjálfstæðisfólkið í borgarráði er ósátt við meirihlutann hvað varðar stækkun á svæði Víkings í Fossvogi. Þau bókuðu:
„Borgarráð samþykkti samhljóða 10. júlí 2008 að gefa Knattspyrnufélaginu Víkingi fyrirheit um stækkun athafnasvæðis félagsins eftir að þágildandi lóðarleigusamningur vegna Gróðrarstöðvar að Stjörnugróf 18 rynni út í árslok 2016. Jafnframt samþykkti borgarráð að kannaðir yrðu möguleikar á nýrri staðsetningu gróðrarstöðvarinnar í samráði við eigendur hennar.“
Þau höfðu ekki sagt sitt síðasta orð um þetta.
„Af óskiljanlegum ástæðum hefur Reykjavíkurborg ekki enn staðið við áðurnefnt fyrirheit gagnvart Víkingi þrátt fyrir margítrekaðar óskir og eftirrekstur félagsins. Víkingur hefur hins vegar sýnt mikla þolinmæði og samningsvilja i málinu, sem borgin ætti að vera þakklát fyrir. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa oft tekið málið upp á vettvangi borgarstjórnar og lagt til að staðið verði við umrætt fyrirheit gagnvart Víkingi. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og fylgiflokka hennar hafa hingað til ekki viljað standa við loforðið heldur margoft komið sér undan því með ótrúlegum töfum og undanbrögðum. Nú síðast hefur meirihlutinn tvisvar frestað tillögum Sjálfstæðisflokksins um málið í krafti atkvæða á fundum borgarstjórnar 3. og 24. júní. Vonandi verður ekki um frekari tafir að ræða af hálfu borgarinnar heldur staðið við áðurnefnt loforð enda sautján ár liðin frá því að það var gefið.“
Víkingar fengu fyrir fáum á silfurfati alla aðstöðu sem Fram hafði við Safamýri.