- Advertisement -

Styrkja fjárhagslega sjálfbæra uppbyggingu Félagsbústaða

Umræðan/Facebook: Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, skrifaði:

Samstarfsflokkarnir Samfylkingin, Píratar, Sósíalistaflokkur Íslands, Flokkur fólksins og Vinstri græn leggja fram meðfylgjandi tillögu í fjórum liðum til að styrkja fjárhagslega sjálfbæra uppbyggingu Félagsbústaða og fjölga félagslegum leiguíbúðum í Reykjavíkurborg. Tillagan verður lögð fram á borgarstjórnarfundi næsta þriðjudag.

  • 1. Eiginfjárframlag Reykjavíkurborgar til fimm ára til fjölgunar íbúða: Lagt er til að Reykjavíkurborg skuldbindi sig til að veita 513 milljónum í árlegt eiginfjárframlag næstu þrjú árin og 263 milljónum á ári næstu tvö ár þar á eftir. Auk þess er lagt til að veita 300 milljónum frá árinu 2025 með viðauka. Lagt er til að borgarstjóra verði falið að útfæra nýtingu eiginfjárframlags með Félagsbústöðum.
  • 2. Nýtt uppbyggingarlíkan til að tryggja framboð hagkvæmra íbúða: Lagt er til að fela borgarstjóra í samstarfi við stjórn Félagsbústaða að leita nýrra leiða til þess að hraða uppbyggingu félagslegs húsnæðis í borginni. Í því samhengi væri borgarstjóra meðal annars falið að kanna sérstaklega fýsileika þess að Reykjavíkurborg, Félagsbústaðir eða nýtt félag á þeirra vegum, kæmi með beinum hætti að uppbyggingarverkefnum sem leiða til fjölgunar félagslegra íbúða. Einnig er lagt til að farið verði í lagalega rýni á slíkri uppbyggingu og öðrum þeim leiðum sem borgarstjóri leggur til.
Þú gætir haft áhuga á þessum
  • 3. Uppbygging fjölbreyttara búsetuforms: Lagt er til að fela borgarstjóra í samvinnu við velferðarsvið að greina þörf fyrir fjölbreyttara búsetuform fyrir ákveðna hópa, svo sem samfélagsbúsetu.
  • 4. Þjónustuíbúðir á vegum Félagsbústaða: Lagt er til að fela borgarstjóra í samvinnu við Félagsbústaði og velferðarsvið að móta aðgerðaáætlun til að mæta þörf fyrir þjónustuíbúðir og yfirfara núverandi húsnæði og skoða hvort það mæti nútíma þörfum.

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: