Reykjavíkurborg:
Gauti B. Eggertsson skrifaði:
Nýjustu fréttir af Doge-nefnd Reykjavíkurborgar eru nýstárlegar. Nú ætlar nefnilega borgarstjórinn að lækna veika starfsmenn og spara á því hvorki meira né minna en sex til sjö milljarða. Þetta er nálægt Musk í metnaði. Hann tilkynnti að 19 milljónir manna, hundrað ára og eldri, væru á skrá hjá almannatryggingum Bandaríkjanna og gaf í skyn að þeir væru dauðir en þægju samt eftirlaun, og þarna myndu skapast stórkostlegir fjármunir. Þangað til í ljós kom að nánast enginn þeirra fékk neitt borgað. Það vantaði bara dánardag í gagnagrunninn. Olli þetta nokkrum ruglingi.
En Doge-nefnd Reykjavíkurborgar ætlar sem sé að spara 6 milljarða með því að „fækka“ veikindadögum starfsfólksins. Ekki virtist með öllu ljóst hvernig slíkt skyldi gert, en sagðist borgarstjóri myndu „fyrst og fremst athuga hvort það séu einhverjar ástæður að baki því að starfsfólki okkar líði illa á sínum vinnustað og það fari í veikindi“. En bætir svo við að það þurfi að „rýna“ hvort veikt fólk noti „þennan veikindarétt með röngum hætti“. Þessar miklu grunsemdir um misferli starfsfólks Reykjavíkurborgar eru svo réttlættar með því að veikindahlutfallið sé „með því hæsta“ sem gerist á markaði. Ekki liggur fyrir á hverju þessi ásökun byggist. Með fullri virðingu. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu segja að sambærilegar tölur um veikindi starfsfólks séu ekki til. Þær tölur sem þó voru birtar um árið 2024 af Viðskiptaráði sýndu 7,5 prósent í Kópavogi, 7,9 í Hafnarfirði, 8 á Seltjarnarnesi. Reykjavík í miðjum hópnum með 7,5. Úr því að Doge-nefnd Reykjavíkurborgar vill „fyrst og fremst“ athuga hvort starfsfólki borgarinnar líði „illa á sínum vinnustað“ væri ef til vill ekki úr vegi að skoða fyrst hvort veikindadagar starfsmanna borgarinnar séu yfir höfuð frábrugðnir því er gengur og gerist, áður en þeir eru vændir um að ljúga til um eigin veikindi. Rannsókn á því hvort borgarstarfsmönnum „líði illa á sínum vinnustað“ nú um stundir er líklega ástæðulaus þegar þeir sitja undir slíkum ásökunum eftir þrjár hrinur af fjöldauppsögnum, þar sem fólk var boðað á fund með fimmtán mínútna fyrirvara án þess að fá að vita um hvað hann væri, uppsagnarbréf send á island.is, hringt í fólk í veikindaleyfi, og stéttarfélagið bíður enn eftir rökstuðningi í helmingi tilvika úr fyrri hrinum.
Hlutfallið hefur
lækkað á hverju
ári síðan 2022.
Það má svo bæta því við að borgin á þegar lækningu við þessu. Hún heitir viðverustefna, var samþykkt í borgarráði í september 2023, með viðverusamtölum og trúnaðarlækni, og uppfærð í janúar með því markmiði að veikindahlutfallið fari í 6,8 prósent fyrir árslok. Hlutfallið hefur lækkað á hverju ári síðan 2022. Það sem er nýtt er grunurinn um misnotkun.
Nú væri líka ákaflega forvitnilegt að vita hvernig spara á 6–7 milljarða á ári með þessum nýstárlegu tillögum Doge-nefndarinnar. Þessi tala virðist vera fengin með þeirri fjármálasnilld að margfalda veikindahlutfallið með launakostnaði. Sem sé, þetta eru þeir 6–7 milljarðar sem borgarstarfsmenn fá borgað þegar þeir eru veikir. Gefum okkur nú sem svo að Doge-nefndin hafi fundið upp nýstárlegar lækningaaðferðir sem ekki fundist hafa í öðrum sveitarfélögum. Nú, þá mæta borgarstarfsmenn í vinnuna án forfalla og það sparast ekki ein einasta króna í launakostnaði til þeirra. En jú, það er að vísu gert ráð fyrir 3,65 milljörðum í að borga fyrir afleysingafólk. En hvað ef lækningin virkar ekki og starfsmenn borgarinnar halda áfram að vera jafn veikir og þeir í nágrannasveitarfélögunum? Stendur þá til að sleppa því að borga veiku fólki laun? Stórt er spurt. Hvernig hægt er að spara 6 til 7 milljarða byggist á reiknikúnstum sem eru eingöngu á færi Doge-nefndarinnar.
En hvaða fólk skyldi þetta nú vera sem helst veikist? Jú, það er helst starfsfólk í leikskólum (sem kemur fáum foreldrum sem hafa átt lítil börn á óvart) þar sem veikindin eru tæp tíu prósent, og í dagþjónustu fyrir fatlað fólk um 11 prósent. Hvernig er það nú annars með þessa blessuðu „millistjórnendur“ á skrifstofu borgarstjóra sem verið var að reka í stórum stíl: 3,3 prósent. Fólkið sem var rekið var sem sé sjaldnast veikt. Næst er því að pönkast í starfsfólki borgarinnar sem er veikt, líklega vegna þess að það hugsar um börnin okkar og fatlað fólk allan daginn.
Musk vakti upp hina dauðu. Hildur læknar sjúka. Ætli Einar og afgangur Doge-nefndarinnar labbi á vatni yfir Tjörnina?