- Advertisement -

Reykjavík er að verða þekkt sem vændisborg

Stjórnmál:

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skrifaði:

„Þegar ég tók við sem dómsmálaráðherra var ég ákveðin í því að vilja fara í aðgerðir gegn kynbundu ofbeldi.

Þess vegna kynnti ég í vikunni frumvarp um vændi.

Nær allir
þolendur
eru konur.

Grundvallarbreytingin er sú að þegar vændiskaupamál koma til kasta lögreglu sé gefin út ákæra í staðinn fyrir að hægt sé að ljúka málinu bara með að borga sekt.

Í sérstakri aðgerð lögreglu sumarið 2025 fundust um 460 virkar vændisauglýsingar á einni vefsíðu. Hundruð kvenna eru auglýstar í vændi hér á landi eins og fram kom í þætti Kveiks fyrr í vor. Þar var sýnt frá því hvernig vændiskaupendur streymdu inn og út af gististað í Reykjavík á öllum tímum sólarhringsins.

Í umfangsmikilli alþjóðlegri aðgerð lögreglu vegna mansals í fyrra fundust 36 hugsanlega þolendur mansals. Nær allir þolendur eru konur. Mikill meirihluti seldur í vændi. Meirihluti var frá Rúmeníu en þolendur voru einnig frá Kólumbíu, Paragvæ, Malasíu, Bretlandi, Portúgal, Kína, Nígeríu og Gana.

Við þurfum að horfast í augu við þessa stöðu og bregðast við henni. Hvers vegna segi ég það? Vegna þess að konur og stelpur sem starfa í vændi eru flestar þar vegna þess að ömurlegar aðstæður hafa leitt þær þangað.

Vændisbrotin, vændiskaupin, eru í dag staðsett í kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Þessi brot eru samkvæmt íslenskum lögum skilgreind sem kynferðisbrot. Það er af ástæðu.

Samkvæmt gildandi lögum varða vændiskaup sektum eða fangelsi allt að einu ári. Framkvæmdin hefur hins vegar verið sú að fyrsta broti hefur verið lokið með því einu að greiða 200.000 kr. sekt hjá lögreglu. Sú afgreiðsla er ekki í samræmi við alvarleika vændis.

Nafn hans
er ekki birt.

Það þýðir að engin ákæra er gefin út og að sakborningur fer ekki fyrir dóm. Nafn hans er ekki birt. Þar með eru fælingarmáttur laganna lítill sem enginn.

Þess vegna skiptir máli að beina sjónum okkar ekki aðeins að þeim sem skipuleggja starfsemina og hagnast á henni heldur líka þeim sem halda henni gangandi með eftirspurn. Það er eftirspurnin sem gerir starfsemina arðbæra.

Þar sem vændi þrífst, þar þrífst önnur brotastarfsemi. Ætlum við okkur að ná árangri í skipulagðri brotastarfsemi er ekki hægt að undanskilja þennan markað. Vændiskaup eru hluti af stærri veruleika þar sem mansal, misneyting og skipulögð brotastarfsemi þrífst í skjóli eftirspurnar eftir vændi. Ég tek því verkefni alvarlega að beina kastljósinu og aðgerðum gegn skipulögðum brotahópum.

Mansal, misneyting og skipulögð brotastarfsemi þrífst í skjóli eftirspurnar eftir vændi.

Við vitum hverjar aðstæður mjög margra kvenna og stúlkna sem starfa í vændi eru. Í því felst auðvitað ekki að það sé reyndin í öllum tilvikum en við verðum að geta rætt um þennan markað út frá því hver stóra myndin er.

Ég legg nú til að
vændiskaup
hætti að njóta
sérmeðferðar
innan réttarkerfisins.

Í rannsókn Stígamóta frá 2022 kemur fram að vændi sé neyðarráð í erfiðri félagslegri stöðu og afleiðingar þess á líkamlega og andlega líðan séu alvarlegar, djúpstæðar og langvarandi.

Reynsla Stígamóta sýnir okkur líka að mörkin á milli vændis og mansals geta verið mjög óljós. Það sem í upphafi getur virst sem leið til fjárhagslegs sjálfstæðis getur þróast yfir í aðstæður þar sem aðrir hagnýta sér varnarleysi. Aðilar hagnýta sér stöðu seljenda og bjóða öryggisgæslu, og húsnæði og bjóða miðlun með þeim afleiðingum að einstaklingurinn missir allt ákvörðunarvald og allt sjálfstæði.

Við vitum einfaldlega of mikið um vændismarkaðinn til að láta eins og hér sé bara í flestum tilvikum um sjálfstætt val manneskju að ræða.

Ég legg nú til að vændiskaup hætti að njóta sérmeðferðar innan réttarkerfisins.

Málsmeðferð er að jafnaði opinber. Nöfn sakborninga birtast í dómsmálum nema þegar nafnleynd ver hagsmuni brotaþola. Í vændiskaupamálum er yfirleitt ekkert í aðstæðum seljenda sem kallar á það að nafn kaupanda sé ekki birt.

Markmiðið er vitaskuld ekki fangelsisvist enda sé ég fyrir mér að þessum brotum verði að jafnaði lokið með skilorðsbundnum dómum. Markmiðið er einfaldlega að tryggja að þessi brot hljóti þá meðferð sem alvarleiki þeirra kallar á.

Þegar kaup á vændi var gert refsivert árið 2009 var markmiðið m.a. að draga úr eftirspurn og vinna gegn mansali. Þessi markmið hafa ekki náðst fram vegna þess hvernig úr þessum málum hefur verið unnið með afgreiðslu þeirra sem sektarmála.

Og nú er Reykjavík að verða þekkt sem vændisborg.

Ég er stolt
af þessu
frumvarpi.

Þannig að 17 árum síðar er ljóst að það þarf að gera betur. Vændi er ört stækkandi markaður og lögreglan telur að það sé að mestu drifið áfram af skipulagðri glæpastarfsemi.

Sem ráðherra dómsmála sem tek það verkefni alvarlega að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Sem ráðherra jafnréttismála finnst mér algjörlega augljóst að stíga þetta skref. Vændi verður í mínum huga nefnilega aldrei slitið úr samhengi við jafnrétti kynjanna. Nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum hefur bent á þetta.

Við megum ekki missa sjónar á því markmiði að sporna gegn mansali og alvarlegri misneytingu í tengslum við vændi.

Það er því mín pólitíska afstaða að það sé bæði rétt og mikilvægt að stíga þetta skref.

Og ég er stolt af þessu frumvarpi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: