Alþingi: Rétt fyrir miððnætti í gær las Bergþór Ólason, sem þá stundina gegndi starfi forseta eftirfarandi tilkynningu:
„Forseta hefur borist erindi frá Guðmundi Ara Sigurjónssyni, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, þar sem óskað er eftir því með vísan til 3. mgr. 40. gr. starfsreglna fastanefnda að veittur verði aðgangur að trúnaðargögnum sem borist hafa utanríkismálanefnd í tengslum við umfjöllun nefndarinnar um 516. mál um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Um aðgang annarra þingmanna en sitja í nefnd að trúnaðargögnum nefndar eru fyrirmæli í 3. mgr. 40. gr. starfsreglnanna. Samkvæmt því getur forseti „ákveðið, ef sérstakar ástæður mæla með því og eftir því er leitað, að aðgangur verði veittur þegar fyrir liggja trúnaðarupplýsingar í máli sem nefnd hefur haft til athugunar enda sé þá ljóst að málið muni koma til atkvæðagreiðslu á þingfundi.“ Gert er ráð fyrir því að verði aðgangur veittur skuli gæta fyrirmæla 39. gr. starfsreglnanna um aðgang og meðferð gagnanna og að um nánara fyrirkomulag fari samkvæmt ákvörðun forseta.
Að mati forseta er það í samræmi við 3. mgr. 40. gr. starfsreglnanna að veita öðrum þingmönnum en þeim sem eiga sæti í utanríkismálanefnd aðgang að gögnunum enda sé ljóst að málið muni koma til atkvæðagreiðslu á þingfundi.
Það er ákvörðun forseta að þeim þingmönnum sem þess óska sé veittur kostur á að kynna sér gögnin á nefnda- og greiningarsviði frá kl. 8:00 fimmtudaginn 28. maí 2026. Um framkvæmd, meðferð og trúnað fer samkvæmt fyrrnefndum ákvæðum starfsreglna fastanefnda.
Þetta tilkynnist hér með.“