- Advertisement -

Vilja umboð á fölskum forsendum

Stjórnmál: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er afar ósáttur við hvernig utanríkismálanefnd starfar:

„Atburðarásin innan utanríkismálanefndar í ESB málinu er búin að vera með stökustu ólíkindum.

Vikum saman hefur verið beðið um lykilupplýsingar, m.a. um að leitað yrði svara frá ESB um stöðu mála og viðhorf þess til ferlisins.

Endalausar afsakanir hafa verið notaðar til að fresta því að það yrði gert.

Fulltrúar Feneyjanefndarinnar, sem komu fyrir nefndina lögðu mikla áherslu á að það yrði að vera skýrt hvað „já” í þjóðaratkvæðagreiðslu hefði í för með sér. Stungu m.a. upp á því að leitað yrði til ESB um viðhorf þess.

Beiðni um slíkt var endanlega hafnað á fundi nefndarinnar nú í morgun með atkvæðagreiðslu.

Jafnframt var tekið fyrir frekari gestakomur og aðra upplýsingaöflun.

Þetta mál snerist aldrei um að upplýsa þjóðina og leyfa henni að ráða.

Þvert á móti, það snýst um að takmarka umræðu og upplýsingar sem mest og reyna að fá umboð á fölskum forsendum svo utanríkisráðherra geti farið fram að vild.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: