- Advertisement -

Fólk vinnur flest með námi sem jafnvel tefur námsframvindu og eykur álag sem almennt séð eykur notkun kvíðalyfja

„Raunhæfur kostur til að bæta lífskjör þeirra er afnám verðtryggðra námslána í áföngum. Við skuldum unga fólkinu það.“

Elín Íris Fanndal.

Alþingi: Elín Íris Fanndal, situr nú á Alþingi sem varaþingmaður hjá Flokki fólksins. Hún sagði á þingi í gær:

„Samanburður á stöðu íslenskra og danskra námsmanna er okkur verulega óhagstæður. Í Danmörku eru skólagjöld við opinbera háskóla almennt engin. Námsmenn fá framfærslustyrk frá hinu opinbera og sinna nánast eingöngu námi sínu. Hér leggja flestir nemendur hins vegar á herðar sér áratugabyrði til að standa straum af framfærslu og skólagjöldum, séríslensk verðtryggð námslán. Hér er húsnæði mun dýrara og framfærslukostnaður hærri.

Fólk vinnur flest með námi sem jafnvel tefur námsframvindu og eykur álag sem almennt séð eykur notkun kvíðalyfja. Við erum því miður Evrópumethafar, og erum þar með vont forskot, þegar kemur að notkun geð- og kvíðastillandi lyfja, sorgleg staðreynd sem þarf að bregðast við. Afleiðingarnar bitna ekki aðeins á einstaka fólki. Þær bitna á samfélaginu öllu og framtíð þess.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við getum því auðveldað fólki að sækja sér menntun og þá sérþekkingu sem samfélagið þarfnast.

Ef fólk lýkur námi og flytur erlendis missir þjóðin um leið dýrmætan mannauð. Menntun á að vera fjárfesting í framtíðinni, ekki langvarandi fjárhagsleg og jafnvel heilsuspillandi byrði á fólk sem kýs að mennta sig sjálfu sér og þjóðinni til heilla. Við erum forrík þjóð. Við getum því auðveldað fólki að sækja sér menntun og þá sérþekkingu sem samfélagið þarfnast.

Það er eðlilegt að við berum okkur saman við lönd sem standa okkur næst eins og Danmörku en það er hins vegar ekki eðlilegt að halli á okkur í þeim samanburði. Í Danmörku er sérstakt stuðnings- og meðferðarkerfi til staðar fyrir fólk sem haldið er heilsuspillandi streitu.

Hér á landi eru lyfjaúrræði hins vegar allt of algeng, enda varla tími til annars konar meðferðar. Styðjum raunverulega við námsmenn í stað þess að leggja líf þeirra og jafnvel heilsu undir verðtryggingu. Raunhæfur kostur til að bæta lífskjör þeirra er afnám verðtryggðra námslána í áföngum. Við skuldum unga fólkinu það. Nú er lag fyrir okkar góðu ríkis- og verkstjórn að hefjast handa við þá vegferð.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: