- Advertisement -

Hallærisplan Kristrúnar virkar ekki

Þetta finnst mér ótrúlegt orðalag – og þarna sést skýr munur á lífsviðhorfi okkar hægrimanna og vinstrimanna í Samfylkingunni.

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Stjórnmál: Guðrún Hafsteinsdóttir skrifaði fyrir augnabliki:

„Hallærisplanið er ekki að virka.

Rétt í þessu var fyrirspurnartíma að ljúka á Alþingi.

Forsætisráðherra lofaði stöðugleika, lægri vöxtum og ábyrgð í ríkisfjármálum. En nú sjáum við hallærisplanið í framkvæmd: Meiri útgjöld, minna aðhald og hærri skattar.

Svar forsætisráðherra var á þá leið að ríkisstjórnin ætlaði ekki í „eftirgjöf á tekjum“.

Þetta finnst mér ótrúlegt orðalag – og þarna sést skýr munur á lífsviðhorfi okkar hægrimanna og vinstrimanna í Samfylkingunni.

Höfum eitt á hreinu: Ríkið á ekki tekjurnar. Ríkið á ekki sjálfsaflafé fólks. Það er fólkið í landinu sem á tekjurnar. Það er fólkið og fyrirtækin í landinu sem skapa verðmætin.

Ríkið er ekki að gefa neinar tekjur eftir vegna þess að ríkið á ekki tekjurnar. Þær eru fólksins í landinu.

Ríkisstjórnin vill meina að skattar séu fyrst og fremst peningar ríkisins og fólkið fái svo, ef það er heppið og með leyfi ríkisins, að halda einhverju eftir í sinn hlut.

Þetta lífsviðhorf munum við Sjálfstæðismenn aldrei samþykkja.

Ríkið á að fara vel með þá fjármuni sem það innheimtir. Sérstaklega núna, þegar heimilin glíma við háa vexti og verðbólgu. Þá á ríkisstjórnin ekki að tala eins og hún sé að sýna örlæti með því að taka aðeins minna.

Það blasir við öllum að hallærisplan ríkisstjórnarinnar gengur ekki upp, enda er forsenda þess kolröng hugsun um hverjir skapa verðmætin í landinu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: