- Advertisement -

„Forsendur fjármálaáætlunar eru brostnar“

 

Alþingi Bryndís Haraldsdóttir, sem nú er orðin fyrsti þingmaður í Kraganum. Það er eftir að bæði Bjarni Ben og Þórdís Kolbrún sögðu af sér þingmennsku, sagði um fjármálaáætlunina:

„Nú bið ég um aðstoð hæstvirts forseta. Má ég minna á hvernig þessi ríkisstjórn byrjaði með fjármálaáætlun á síðasta þingi. Þá gekk stjórnarandstaðan út vegna þess að sú framsetning sem var á fjármálaáætlun var óboðleg. Það var samþykkt hér að reyna að taka málefnalega umræðu í fyrri umræðu um fjármálaáætlun vegna þess að fyrir lá skriflegt loforð um það að næst þegar fjármálaáætlun kæmi fram þá myndu koma þau gögn sem þingmenn þurfa á að halda til að taka málefnalega umræðu um fjármálaáætlun. Núna erum við með nefndarálit sem viðurkennir vissulega þann stóra og mikla vanda sem við erum stödd í: Forsendur fjármálaáætlunar eru brostnar. En hver eru viðbrögð meiri hluta fjárlaganefndar? Engin.

Virðulegur forseti. Það er ótækt annað en að umræðu um fjármálaáætlun verði frestað og ríkisstjórnin reikni þetta upp. Hægt er að taka þessa umræðu, mögulega á ákveðnum stubbi í ágúst sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum alla vega farið fram á að verði í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem ráðherrar geta setið til svara um málefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Við gætum hæglega klárað fjármálaáætlun þá í ljósi þess að ríkisstjórnin virðist þurfa enn lengri tíma til að uppreikna hana.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: