Miðflokkurinn mun ekki leggjast gegn þessu máli.
„Þetta er flókið og viðamikið mál í grunninn, verið að stofna til eins konar fangelsis vegna ólöglegrar dvalar. Miðflokkurinn mun ekki leggjast gegn þessu máli enda hafa verið færð fyrir því skynsamleg rök að í núverandi ástandi sé þetta illnauðsynlegt úrræði.
Mun betur færi á því, og við tökum það fram í þessari umræðu, á litla Íslandi, sem er fullvalda eyríki, að hætta frekar að taka við umsóknum um hæli hér á Íslandi, eins og Miðflokkurinn hefur ítrekað lagt til. Þá þyrftum við ekki sífellt að vera að plástra hinn manngerða vanda sem fylgir vandræðunum á landamærunum og kostar samfélagið fleiri milljarða á ári.
Og það er annað í þessu, kostnaðaráætlunin í þessu er sannarlega óraunhæf. Það þarf ekki annað en að koma á svona stað til að sjá að þarna er um mikið óyndisúrræði að ræða og verður yfirleitt mun verra en áformin standa til og benda til.
En það er vonandi að regluleg skýrslugjöf muni geta gefið okkur ljósa mynd af þessu máli. En maður óttast að áður en maður veit af verði þetta komið í sama óefni og fangelsin eru nú þegar. Miðflokkurinn leggst ekki gegn málinu en situr hjá.“