„Í ljós hefur komið, eins og flestir vissu, að þessi samningur er svo íþyngjandi fyrir okkur að við hann verður ekki unað.“
Þorsteinn B. Sæmundsson.
Alþingi: Þorsteinn Sæmundsson sagði á Alþingi í gær:
„Um mitt ár 2023 var til umræðu í landinu mál sem þáverandi utanríkisráðherra kallaði stærsta hagsmunamál Íslands frá upptöku EES-samningsins. Þetta mál var að sjálfsögðu ETS-mál Evrópusambandsins,“ sagði Þorsteinn B. Sæmundsson sem nú starfar sem varaþingmaður, á Alþingi í gær.
Mun fimmfaldast til ársins 2030, fara úr 5,5 milljörðum á ári í 28 milljarða.
„Málið þótti þó ekki nógu stórt þá til að nýta EES-samninginn og ákvæði hans um að hafna upptöku á þessari gerð, ekki frekar en menn þorðu að fara í það þegar upptaka orkupakka þrjú varð. Þá þorðu menn ekki að taka til varna samkvæmt EES-samningnum. Á þessum tíma, 2023, þá skottaðist Ursula hingað frá Brussel í einkaþotunni því elítan þar ferðast nú ekki eins og bolurinn, svo maður vitni nú til ástsæls söngvara sem verður borinn til grafar í dag og blessuð sé hans minning. Hún kom hingað í einkaþotunni og hitti fyrir þáverandi forsætisráðherra og þáverandi utanríkisráðherra og að loknum fundi þar sem menn töldu sig hafa tryggt undanþágur frá þessum samningi — kom reyndar í ljós síðar að það var ekki nema til ársbyrjunar 2027. Þær voru jafn glaðbeittar, þessar þrjár, á svipinn að loknum fundi og Neville heitinn Chamberlain var 1938 þegar hann hélt að hann hefði tryggt frið um vora tíma. En þær voru að vísu ekki með regnhlíf eins og hann.“
Þorsteinn endaði ræðu sína svona:
„Í ljós hefur komið, eins og flestir vissu, að þessi samningur er svo íþyngjandi fyrir okkur að við hann verður ekki unað. Það er mjög líklegt að hann muni geta orðið flutningsstarfsemi hér á landi mjög til trafala vegna þess að kostnaðurinn við þennan samning mun fimmfaldast til ársins 2030, fara úr 5,5 milljörðum á ári í 28 milljarða. Og hvar halda menn að kostnaðurinn af þessu lendi? Hann lendir hjá almenningi að sjálfsögðu. Ef nokkurn tímann var tilefni til að taka upp gerð EES-samnings og hafna henni þá er það nú.“