RVK: Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp samningi sem var gerður við fólk sem kýs að búa í hjólhúsum. Sanna Magdalena er ekki sátt:
„Miður er að sjá að nýr hægri meirihluti segi upp afnotasamningi sem er nýgerður við hjólabúa með engin áform um annað fyrirkomulag. Þann 16. apríl sl. var samþykktur afnotasamningur þannig að þau sem búa í hjólhýsum og húsbílum geti haft öruggt og viðunandi rými til afnota.
Hjólabúar hafa lengi verið við Sævarhöfða í rými sem hentar ekki og því var ánægjulegt að viðeigandi staðsetning hafi verið fundin fyrir hópinn sem hafði búið við mikla óvissu.
Í samningi um afnotasamning er skýrt kveðið á um að hið leigða svæði skuli eingöngu nýtt til óhagnaðardrifinna afnota og að hjólabúar greiði fyrir afnot af svæðinu.
Hópur fólks kýs að búa með þessum hætti og er það hlutverk yfirvalda að mæta því. Því er miður að hægri flokkarnir slíti samningi skömmu eftir að hann var gerður.“
