Banaslys varð á Biskupstungnabraut í dag. Samkvæmt lögreglu skullu tveir bílar saman. Ökumaður í öðrum bílnum var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn slyssins. Lögregla segir frekari upplýsingar ekki verða veittar að sinni.
Konan sem lést í bílslysi á Hvolsvelli í 30. desember hét Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir. Hún var 34 ára gömul.
Á morgun klukkan fjögur fer fram bæna- og minningarstund í Oddakirkju.
„Þar getum við sótt styrk, tendrað ljós og treyst böndin. Guð gefi fjölskyldunni, ástvinum og okkur öllum styrk,“ sem segir í tilkynningu Breiðabólstaðarprestakalls á samfélagsmiðlum.
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar málið sem slys.