„Björg Magnúsdóttir var kjörin oddviti Viðreisnar í Reykjavík í rafrænu leiðtogaprófkjör. Hún mun því leiða lista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum.
Björg hlaut 1011 atkvæði í leiðtogaprófkjörinu eða 48% af gildum atkvæðum.
„Ég er ofboðslega þakklát fyrir öll þau sem treystu mér til að leiða listann í borgarstjórnarkosningunum í vor ,“ segir Björg. „Ég er líka mjög þakklát meðframbjóðendum mínum sem háðu drengilega og jákvæða baráttu, í anda Viðreisnar. Þetta er bara fyrsta skrefið. Í vor þarf Reykjavík viðreisn með litlu „v“ og Viðreisn með stóru „V“.
Úrslitin voru kynna á fjölmennri kosningavöku á Petersen í gærkvöld.
Á kjörskrá voru 2934 og var kjörsókn 72%.“