- Advertisement -

Blásið til sóknar

Ríkisstjórnin tók við vegakerfinu í aumu ástandi, vegirnir lágu undir skemmdum vegna ónógs viðhalds og gangagerð lá niðri.

Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins.

Facebook:

Sigurjón Þórðarson Flokki fólksins skrifaði:

Ríkisstjórnin hefur nú kynnt samgönguáætlun sem markar tímamót þar sem boðað er stórbætt viðhald og aukna þjónustu auk mikillar uppbyggingar vegakerfisins. Ríkisstjórnin tók við vegakerfinu í aumu ástandi vegirnir lágu undir skemmdum vegna ónógs viðhalds og gangagerð lá niðri. Ástandið endurspeglaði engan veginn miklar þjóartekjur né að við höfum dregið lærdóm af árangri okkar næstu nágranna Færeyinga. Ferðamenn sem koma út úr Norrænu á Seyðisfirði eru hvað samgöngur varðar að ferðast aftur til fortíðar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Um helgina var ég minntur rækilega af Seyðfirðingum á þörfina á bættum samgöngum við Egilsstaði, en brýn þörf er fyrir jarðgöng víðar m.a. Súðavík, Vopnafirði og Siglufirði. Það er ekki auðvelt verk að forgangsraða nauðsynlegum framkvæmdum þegar mannslíf eru í veði

Þessi ljósmynd segir allt sem segja þarf um stöðuna við gangnamunann við Strákagöng sem liggja til Fjallabyggðar, en að leggja af hættulegan veg og úrelt göng eru í forgangi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: