- Advertisement -

Breska lögreglan tjáir sig um Gylfa Þór – Everton vill spara tugi milljóna á viku með því að losna við leikmanninn

Lögreglan í Manchester vonast til að niðurstaða fáist bráðum í rannsókninni á íslenska knattspyrnumanninum Gylfa Þór Sigurðssonar. Hann hefur verið laus gegn tryggingu meðan rannsóknin stendur yfir og verður laus til 16. júlí næstkomandi. Þá vonast lögreglan til þess að málinu verði lokið:

,,Eins og er getum við ekki stað­fest að það sé dagurinn sem niður­staða um það hvort á­kæra eigi í málinu eða ekki verður kveðin eða hvort fram­lengja eigi lausn hans gegn tryggingu. Rann­sókn hefur staðið yfir í langan tíma en vonir standa til að það styttist í niður­stöður hennar,“ segir tals­maður lög­reglunnar í Manchester í sam­tali við Frétta­blaðið.

Alls hefur lausn Gylfa Þórs gegn tryggingu verið fram­lengd í þrí­gang frá því að hann var hand­tekinn í júlí í fyrra.

Ljóst þykir að Gylfi Þór sé á förum frá Everton en samningur hans rennur út í lok næsta mánaðar. Gylfi hefur hvorki æft né spilað með Everton í tæpt ár eftir að hann var handtekinn á Englandi í fyrrasumar vegna ásakana um að hafa brotið kynferðislega gegn ólögráða stúlku.

Gylfi hefur verið í herbúðum Everton í fimm ár en hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Enska úrvalsdeildarfélagið borgaði 45 milljónir punda fyrir íslenska landsliðsmanninn sumarið 2017. Fjölmiðlar ytra segja að losni félagið við Gylfa, og þrjá aðra leikmenn geti Everton sparað sér 50 milljónir á viku. Hann er lang­launa­hæsti ís­lenski knatt­spyrnumaður­inn en hann fær um 850 millj­ón­ir króna í árs­laun hjá enska úr­vals­deild­ar­fé­lag­inu Evert­on.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: