- Advertisement -

Eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi einsett sér að rústa dómgæslu og lögreglumálum

Jón Kristinn Snæhólm skrifar:

Það er eins og að Sjálfstæðisflokkurinn hafi einsett sér að rústa dómgæslu og lögreglumálum landsins í gegnum tíðina.

Allt það vonda í þessum málum hefur gerst á hans vakt:

  • -óhæfir yfirstjórnendur
  • -launakjör í lamasessi
  • -hroki og einelti
  • -fækkun lögreglumanna
  • -menntun og skólamál í ólestri
  • -stuldur í munavörslu, óupplyst
  • -skipan í dómarastörf
  • -engin sem lítil nýsköpun
  • -silagangur sýslumannsembætta
  • -algjört ráðleysi gegn fíkniefnum
Þú gætir haft áhuga á þessum

Núverandi dómsmálaráðherra og hennar lið hefur á sínum stutta ferli sýnt að þarna sé verið að spyrna við fótum. Þarna fer dómsmálaráðherra sem sýnir kjark.

En betur má ef duga skal..

Ástandið á Suðurnesjum er þannig að viðkomandi deiluaðila þarf að fjarlægja af staðnum og setja í önnur verkefni sem krefjast brýnna skúffu athugunar.

Utanríkisráðuneytið getur verið ráðgefandi í meðhöndlun slíkra verkefna.

Þú ert „Frekinn“. Færður til, ekki rekinn. 🤺

Oft var þörf, nú er nauðsyn!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: