- Advertisement -

Geðdeildir taka ekki við veikum föngum

Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu:

Veikt fólk í fangelsum getur orðið mjög hættulegt sér, samföngum og starfsfólki.

Fangelsi landsins eru undirmönnuð, fagfólki hefur verið fækkað og fangaverðir hafa hvorki menntun né þjálfun til að meðhöndla andlega veikt fólk.

Afstaða, félag fanga á Íslandi sendi dómsmálaráðuneytinu og Fangelsismálastofnun þetta erindi núna í gær en þetta er erindi er nánast eins og Fangavarðafélag Íslands sendi þessum aðilum einnig í vikunni. Okkur finnst rétt að vekja athygli á þessu í samfélaginu. 

Erindi:

Afstaða, félag fanga á Íslandi, harmar þann atburð sem átti sér stað í fangelsinu á Hólmsheiði laugardaginn 15. janúar síðastliðinn en þá réðst fangi að fangavörðum með alvarlegum afleiðingum. Það er réttmæt og nauðsynleg krafa að verulegar breytingar verði gerðar á vistun fólks sem glímir við geðræn veikindi og jafnvel að ráðist verði í að útbúa sérstakt úrræði fyrir þá fanga sem teljast of hættulegir fyrir vistun á geðdeild en eru of veikir til að afplána refsingu sína í hefðbundnu fangelsi. Afstaða hefur mjög ákveðnar hugmyndir um það hvernig hægt er að leysa málið án þess að það kosti meira en fyrirhugaðar framkvæmdir á fangelsinu Litla-Hrauni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Álagið sem skapast á starfsfólk fangelsanna er gríðarlegt.

Veikt fólk í fangelsum getur orðið mjög hættulegt sér, samföngum og starfsfólki. Ítrekað hefur það komið upp að andlega veikt fólk ráðist á og veiti öðrum áverka. Bæði Afstaða og geðheilsuteymi fangelsanna hafa haft verulegar áhyggjur enda hefur þessum tilvikum fjölgað á umliðnum árum. Þá hafa Afstaða og fangaverðir í langan tíma bent á að öryggi og aðbúnaði í fangelsum væri ábótavant þar sem andlega veiku fólki hefur fjölgað í fangelsum landsins auk þess að vímuefnavandinn er stjórnlaus á Litla-Hrauni. Í fyrstu grein í lögum um fullnustu refsinga segir: „Markmið laga þessara er að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti og að sérstök og almenn varnaðaráhrif refsinga séu virk“. Með þessu er verið að segja að það eigi að tryggja öruggt vinnuumhverfi innan fangelsanna og að allur aðbúnaður eigi að styðja við að markmið laganna náist. Þannig er staðan ekki í dag.

Fangelsi landsins eru undirmönnuð, fagfólki hefur verið fækkað og fangaverðir hafa hvorki menntun né þjálfun til að meðhöndla andlega veikt fólk. Endurmenntun er engin og vilji virðist ekki vera til að færa nám fangavarða á háskólastig, til dæmis með því að samtvinna það námi í lögreglufræðum. Á sama tíma neita geðdeildir að taka við föngum sem glíma við geðræn veikindi. Álagið sem skapast á starfsfólk fangelsanna er gríðarlegt og nú er svo komið að veikindi, vanlíðan og starfsleiði eru orðin áberandi sem einnig leiðir til þess að ekki er unnt að tryggja öryggi fanga og starfsfólks.

Afstaða skorar á stjórnvöld að líta upp úr minnisblöðum sóttvarnarlæknis og skoða stöðuna víðar í samfélaginu. Það þarf að stíga inn í fangelsin og leysa úr þeirri stöðu sem komin er upp. Það þarf að tryggja öryggi í fangelsunum til þess að ná markmiði laga um fullnustu refsinga. Að mati Afstöðu ætti dómsmálaráðherra þegar í stað að skipa nefnd með fulltrúum ráðuneyta dómsmála og heilbrigðis og einnig Fangelsismálastofnunar, Afstöðu, fangapresti, fangavarðafélaginu, Vernd og geðlheilsuteyminu til þess að fara yfir málið og koma mjög fljótlega með tillögur að úrbótum í fangelsiskerfinu þegar kemur að andlega veiku fólki.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: