Grein:
Hvað sem hver segir lykta starfslok Ársæls Guðmundssonar, skólameistara Borgarholtsskóla, af hefnd. „Týndu“ strigaskór barnabarns Ingu Sæland virðast draga dilk á eftir sér. Hvað sem Inga og Guðmundur Ingi ráðherrar segja tengjum við starfslokamál Ársæls skólameistara við skóna.
Ekkert bendir til annars en að Ársæll sé farsæll í starfi sínu. Ég varði einu sinni drjúgum dagshluta í Borgó. Talaði þar jafnt við kennara og nemendur. Sama við hvern ég talaði. Allt það fólk var jákvætt um starf skólans.
Vandi fylgir vegsemd hverri. Ekki síst þegar fólk verður ráðherra í ríkisstjórn. Það eiga Inga og Guðmundur Ingi að vita.
Eitt er víst í þessu máli öllu. Barnabarn Ingu þoldi ekki við í Borgarholtsskóla eftir símtal ömmu sinnar og þess sem á eftir fylgdi.