- Advertisement -

Frítt verði að leggja í tvo tíma

Mjög margt eldra fólk forðast bílastæðahúsin.

Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins, vill að heimilt verði að leggja frítt í bílastæðahúsin í borginni í 120 mínútur á dag.  

„Áður hefur Flokkur fólksins lagt til að heimila að leggja frítt í 90 mínútur í bílastæði Miðbæjarins og einnig að komið verði á bifreiðastæðaklukku í borginni sem reynst hefur frábærlega vel þar sem slíkt fyrirkomulag er. Enn hafa ekki borist viðbrögð borgarmeirihlutans við þessum tillögum.“

Kolbrún segir að bílastæði Miðborgarinnar séu ekki fullnýtt og kemur þar margt til. „Að heimila frítt stæði í 2 tíma á dag er hvatning fyrir Íslendinga að skjótast í Miðbæinn. Auka mætti sýnileik þessara bílastæðahúsa, t.d. með því að auglýsa þau betur með myndrænum hætti.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Kolbrún er með athugasemdir um bílastæðahúsin: „Annað mál er síðan hvernig ástatt er um bílastæðahúsin en mörg þeirra eru því miður afar óaðlaðandi og aðkoma þröng og hafa þar að leiðandi fælingaráhrif. Mjög margt eldra fólk forðast þau. Eins og vitað er hefur miðbærinn svo gott sem tæmst af Íslendingum og er nú fátt að finna þar nema ferðamenn og þá sem búa á svæðinu auk gesta sem sækja skemmtanalífið.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: