- Advertisement -

Góðmennt í Sprengisandi

sme lllSPRENGISANDUR Von er á góðum gestum í Sprengisand á Bylgjunni í fyrramálið.

Fyrstar koma þær Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Svandís Svavarsdóttir, en báðar eru þingflokksformenn fyrir sína flokka, Sjálfstæðisflokkinn og Vinstri græn.

Í dagskrárliðinn Hér og nú, sem í sumum öðrum útvarpsþáttum kallast fréttir vikunnar, koma Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, Katrín Oddsdóttir lögmaður og fyrrum fulltrúi í stjórnlagaráði, og Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur.

Meðal mála á málaskrá þáttarins eru:

Ferðamál
Stjórnarskráin
Bónusar og ofurhagnaður
Minjavernd til forsætisráðherra
Háskólinn og forsætisráðherra
Vetrarfrí Alþingis
Einkavæðing
Afkoma bankanna
Búvörusamningurinn og svo fleira.

 

Bylgjan, fm 989, eftir fréttir klukkan tíu í fyrramálið.

Fyrir þáttinn verður föstudagsviðtalið á dagskrá, þar sem Ólöf Skaftadóttir og Viktoría Hermannsdóttir tala við Grím Atlason.