Mannlíf: Magnús R. Einarsson, tónlistarmaður og fjölmiðlamaður, skrifaði:

„Í gamla daga var manni sagt að það væri þrennt sem mætti alls ekki krítisera í Vestmannaeyjum og væri hafið yfir alla gagnrýni. Þessi heilaga þrenning í Eyjum ku vera ÍBV, Sjálfstæðisflokkurinn og Þjóðhátíðin. Nú hefur fjórða heilaga kýrin bæst við. Það eru Eyjagöng. Ég viðraði þá skoðun á dögunum að draumurinn um göng milli Eyja og lands yrði að öllum líkindum aldrei að veruleika af ýmsum ástæðum. Nú ætla menn að dæla hátt í einum milljarði króna í rannsóknir á hafsbotninum sem er aðallega úr jökulseti, sandi og settur sprungum enda á virku gossvæði.

Á meðan verður líklega lítið sem ekkert gert í að betrumbæta afleitt ástand í samgöngumálum. En auðvitað var mér serímóníulaust sagt að halda fokking kjafti. Þannig er nú það. Ég las nýverið póst frá Árna Sigfússyni sem er stjórnarformaður Eyjaganga ehf. Árni hefur óbilandi trú á göngum og hann veltir ekki einu sinni fyrir sér þeim möguleika að þau kunni að vera ómöguleg í framkvæmd. Óvissan varðandi göngin í hans huga eru einungis spurningin um kostnað. „Með rannsóknum yrði dregið úr óvissu varðandi kostnað við að gera 18 kílómetra löng jarðgöng milli lands og Eyja,“ skrifaði stjórnarformaðurinn.
Ekki aukatekið orð um dýptina, jarðlögin gljúpu, Suðurlandsskjálftann, sprungusvæðin neðarsjávar, væntanleg eldgos osfrv, bara kostnað.
Ég hef nú stundum sagt við vini mína hér í Eyjum að innganga í ESB væri sennilega vænlegust til árangurs við að gera göng að veruleika en við daufar undirtektir vægast sagt. Þeir hinir sömu verða líka soldið stúm þegar ég spyr þá hvernig þeir haldi að ástandið verði í Eyjum ef göngin verða til.
Þúsundir bíla í hverri viku, Þjóðhátíðin sem og aðrar hátíðir yrðu eins og Þjóðvegahátíðin á Þingvöllum 17. júní 1994. Bílastæðagjöld verða himinhá, fótboltavöllum breytt í rútustæði og Heimaey yrði ekki lengur eyja, heldur útnári og endastöð. Þá er mér líka sagt að grjóthalda kjafti. Sem ég og mun gera héðan í frá og ekki orð um þetta meir. Adieu.“