- Advertisement -

Hagnaður Landsbankans er jafnvel meiri en útflutningsverðmæti á komandi loðnuvertíð

„Þetta er ekki eðlilegt ástand heldur kerfisbundin tilfærsla frá almenningi og atvinnulífi til banka – og ábyrgðin liggur hjá Alþingi.“

Vilhjálmur Birgisson.

Umræðan: Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifa r mjög þarfa grein um ofurhagnað Landsbankans og hvaðan hann kemur:

„Þetta er galið og Alþingi verður að svara fyrir þetta. Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða króna á einu ári. Þar af eru 62 milljarðar í hreinar vaxtatekjur, sem þýðir einfaldlega munurinn á því sem bankinn rukkar heimili og fyrirtæki í vexti og því sem hann borgar sjálfur í vexti fyrir innistæður – að viðbættri verðtryggingu sem hækkar skuldir fólks sjálfkrafa ár eftir ár.

Banki sem hvorki skapar gjaldeyri né raunveruleg verðmæti.

Þetta er ekki hagnaður sem verður til með nýsköpun eða raunverulegri verðmætasköpun, heldur bein afleiðing þess að heimili og fyrirtæki eru föst í skuldakerfi þar sem háir vextir og verðtrygging vinna saman gegn þeim. Ofan á þetta bætast 12 milljarðar í þjónustugjöld, rukkun fyrir að fá aðgang að eigin peningum.

Þessi hagnaður er jafnvel meiri en útflutningsverðmæti á komandi loðnuvertíð. Banki sem hvorki skapar gjaldeyri né raunveruleg verðmæti er orðinn arðbærari fyrir eigendur sína en heilar loðnuvertíðir eru fyrir þjóðarbúið.

Spurningin til Alþingis er einföld: Hvernig stendur á því að þetta fær að viðgangast ár eftir ár, þegar þessi ofsahagnaður verður til vegna skulda heimila og fyrirtækja, verðtryggingar og pólitísks afskiptaleysis? Þetta er ekki eðlilegt ástand heldur kerfisbundin tilfærsla frá almenningi og atvinnulífi til banka – og ábyrgðin liggur hjá Alþingi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: